Translate

sunnudagur, 1. maí 2016

Hamingja án krítarkorts

Grjóthaltu kjafti,
þú veist hvað það er gott.
Èg er búinn að finna hina fullkomnu formúlu að ferskleika sálarinnar:
rándýr vímuefni,
slagsmál,
ölæði
og rökræður um frið.

Allir kjálkar á ferð og flugi,
hornaugu úr horni þeirra blindu.
Bros einkenna yfirlitin og brárnar.
Enginn er hèr svikinn.
Jóna, eðal kók og allt svo gott á litinn.
Lætur vel í eyrum.
I dig'it.

Hin mýksta rúmdýna
er ekki endilega sú þægilegasta,
til lengri legu allavega.
Hentar helst til samfara frekar en svefns.
Fólk langar yfir höfuð ýmist;
helst hvoru tveggja.
En það er ekki hægt að gera allt í einu.
Mikil er yfir þèr fegurðin og þegiðu.
Skilurðu?

Ofvirkir alkóhólistar með rándýr tóneyru
gera sèr upp runur af afsökunum,
útskýringum og rèttlætingum
til þess að vera aldrei,
ekki í hálft vakandi andartak,
edrú - ekki "ekki drekkandi" bjór.
Þeir kalla sig starfandi tónlistamenn og atvinnu flytjendur.
En èg veit að þeir vita, einsog èg,
og vita að èg veit að þeir vita að aðrir
(sem vilja vita og reyna, strita)
vita einsog èg og þeir vita,
að menn skreyta sig ávalt skrautlegustu fjöðrunum sem í boði eru,
ef þeir geta.
Èg geri það líka.
Alveg einsog allir aðrir.

Allt er snilld sem tengir mann að innan,
sem sameinar hug og hjarta.
Þakklæti mitt er margfalt og svo margfalt
að mig skortir val orða.

Írskur bar. Austurstræti.
Bjórinn álíka dýr og kókaín.
The Dubliners undir nálinni.
Èg er eini innfæddi túristin.
Èg staldra við af tilviljun,
èg staldra fyrir brjóstin...

Guð er greinilega til.

Sitjandinn svo fullkominn að manni svíður í augun
og eflist allur lífskrafturinn
til líkamlegrar fórnar til náttúrunnar.

Elska og upplifa.
Lífið maður - lífið!

En já, aftur - heilagur kaleikur og Kormákur...
Allt saman hefur sín einstöku áhrif
- og èg er seldur.

Lífið í sínum öllu ljósum.
Ást og virðing til þeirra sem skilja.

Veröldin öll svo stinn
og mjúk í senn.
Ögrandi og róandi...
Fullkomnun.

Èg þarf ekkert meira.
Ekkert meira en himneska mýkt veruleikans:
Yndislegur er'ann.

Fegurðin er í augum allra.
Sumir sjá eitthvað,
aðrir annað.
Gott og blessað,
hollt og heilagt til umhugsunar.

Án gríns.

---

Þegar dagurinn er að kveldi kominn,
sjáum við að lífið, í heild sinni,
hefur aðeins einu að þakka í hið heila;
aðeins það getur sèð fyrir og bjargað lífi
einsog það gerir óteljandi sinnum í hverju andartaki sem verður til og uppfyllist meðal manna:
Ljós.

Kæra veröld, ástkæra tilvera og allt þar á milli,
èg gæti haldið áfram til næstu aldamóta
og ennþá lengra!
Ég vill einungis að það komi fram.
Komi fram sem skýrast,
með fyllstu virðingu og dýpstu aðdáun
ofan á hið ólýsanlega þakklæti
sem èg finn fyrir og ber í brjósti!
Losti minn er gagnvart lífinu,
girnd mín er guðdómur,
hold mitt er jörðin
og hugurinn andinn í skýjunum...

Góðar stundir og passið ykkur á bílunum.