Translate

föstudagur, 16. maí 2014

Heilshugar

Ég upprifjun fékk óumbeðna, 
skínandi í gegnum anaðann hugann,
um æskunnar skot sem forðum ég, 
saklaus gerði sjálfum mér upp,
til þín - í misskilningi víðrar vináttunnar.
Alein, hvort öðru við mættum; 
leið, yfirgefin - reið...
en sáttina fengum í þrengslum
félagsskaps hvors annars.
 
Vinkona - frænka - systir!
Ég sakna þín; ég af þér missti
fyrir ógleði vímunnar kvala.
 
Ég vildi að ég hefði séð og komið auga á
vísbendingarnar þínar hvað það varðar.
 
Oft og óðum, óður ég 
mig í minningum baða
til að endur-upplifa
þá tíma sem við áttum saman
svo glöð - þó í tíma og ótíma.
 
Og þó svo margt nú okkur skilji að,
ég í vonina held um að hittast á ný.
Og þá ég mun þér ekki aftur týna.
 
Þangað til ég óska þér
gæfu og blessunar!
Heilshugar.

sunnudagur, 11. maí 2014

Fjötrar fráhvarfa

Ég er fjötraður fráhvörfum;
finn mér upp afsökun
fyrir sjúka löngun
sem heldur mér föngnum
og elur mig feitan
á raunum röngum.

Þvílíkur ofsi,
þvílíkur kraftur!
Ég er ákveðinn, en haltur.
Þetta gerist bara
allt'í'einu -
aftur og aftur og aftur.

Trúandi því að komi annar dagur bjartur,
ég reyni að flýja, en sit vízt fastur...
svo þetta fær vízt að gerast
aftur og aftur og aftur.



þriðjudagur, 6. maí 2014

Ég er öskrandi alkóhólisti

Ég er öskrandi alkóhólisti; 
ölvuð karl-ugla á kvisti.
Neikvæður níhílisti.
Allt ég átti en frá mér missti 
í ölæði, og ekki sá fyrsti
sem ævinni eyðir í borg 
alinni 'á eymd og djúpri sorg.
Glataður gisti ég kuldaleg torg
því gleymd er barnatrúin.
Gamall; leiður - geðheilsan fúin.
Lífsins löngun fæddist lúin
og elja sálar öfugsnúin.
Auralaus ég; brotinn hnúi -
og illa telst ég búinn
til fararinnar löngu,
minnar einmannalegu göngu.
Reiður yfir raunum ströngum;
ráðviltur á stræti þröngu.
Yfirgefinn, einn í mínum öngum.
Magnast upp mæðandi

máttleysið. Kæfandi
leggst yfir leiði mitt mara.
Ljót, hún neitar að fara.
Hann svíður; er særandi,
sannleikurinn - 'og'
erfiður. Engin von,
ást né nokkur friður.
Því er ver og miður.
Dvergar dansa framhjá.

Dáleiddur horfi ég á
þá
mögnuðu sjón að sjá;
sjálfan mig, aftanfrá
að líta. 
Hugarins leyndarmál.
"Hið best geymda".

- Staðfesting staðreynda.