Translate

mánudagur, 19. október 2015

Sjálfstæður sálfræðitími

áfallastreituraskaður
ofvirkur athygglisbrestur
með
geðrofshneigð geðhvörf
hömlulausra hugsana
alkóhólistans 

allt í rugli
samt
allt'í'lagi
hipp'og'kúl gæi
með ekkert
nema góðan ásetning

röltandi anandi 
andi barnsins
flæktur í flókin
veiðarfæri mannsins

menn þurfa þó ekki 
endilega að vera týndir
þó þeir séu staddir úti 
á miðju túninu
kannski villast menn bara 
og ruglast af ráfi sínu 
í lokuðu þröngu rými
stjórnleysisins

föstudagur, 2. október 2015

Þú finnur það sem þú leitar að ef þú vilt. (BiPolar)

fjaðrirnar
í vindinum fjúka
meðan
systir sólarinnar
drepur tittlinga
grúturinn sèr um restina

biluð ljósapera
í sýndarveruleika
- gjafir guðanna -
tónlist næturinnar leikur um
og í gegnum runnana:
túlkun tilfinninga
flöktandi drauma náttúrunnar
sem sjást í blindi
heyrast í heyrnarleysi
og veikindin
óheft streyma
gegnum naglaför bárujárnanna
á þaki hugans
- andans -

sýktar raunir þess liðna lifna
í hafsjó skopstælinga hugans
og alls sem er virkilega
-
gangandi ryðgud Bónuskerra
misskilin tilvera

(djók)

allt er ljómandi
ólýsanlega æðislegt
einsog
óstöðvandi raðfullnægingar
blátt og bleikt
lifandi skáldsaga
þrískipt alsæla

faðirinn
sonurinn
og hinn
heilagi andi

hugur og sál
saman svífandi
líðandi
inní draumalandið
samt vakandi
og í fullkomlega medvituðu ástandi

depurð ekki til
nè oflæti
bara flöktid
þess á milli
ad vera
og
ekki vera
slètt sama
hljómar kannski furðulega
en èg fíla það...

það er nú það
og jájá
svei mér þá
bara amen