Translate

mánudagur, 19. október 2015

Sjálfstæður sálfræðitími

áfallastreituraskaður
ofvirkur athygglisbrestur
með
geðrofshneigð geðhvörf
hömlulausra hugsana
alkóhólistans 

allt í rugli
samt
allt'í'lagi
hipp'og'kúl gæi
með ekkert
nema góðan ásetning

röltandi anandi 
andi barnsins
flæktur í flókin
veiðarfæri mannsins

menn þurfa þó ekki 
endilega að vera týndir
þó þeir séu staddir úti 
á miðju túninu
kannski villast menn bara 
og ruglast af ráfi sínu 
í lokuðu þröngu rými
stjórnleysisins

Engin ummæli:

Skrifa ummæli