Translate

föstudagur, 18. október 2024

Allsgáður og stútfullur af ást

Veruleikinn er ekkert 
nema minningar 
sem endurspeglast 
gegnum upplifanir; 
heimildir sjálfsins 
að tilheyra 
þeirri tilvist 
sem allir deila. 
Endurómar sálasöngva. 

Þrautseigja sáttarinnar 
springur út 
í viðurkenningu sjálfsins 
á breyskleika skepnunnar 
og hennar skynjunar. 
Upplifun réttlætinga 
eigin hagsmuna 
öllu og öðrum framar. 
Sjálfsjúkar hyllingar 
hugspillingar efnis í anda. 
Leitin að nýjum
og ódýrari landa.

Ég er ekki ég 
og á sama tíma 
er ég. Og ég sé 
mig í þér og næsta 
manni og tré. 
Vaðandi regnblautar 
hellur og gangstéttar
og malbik með puttana 
á iði og hugaðar hendur 
aftur fyrir bak
og speglandi skuggar 
í glugga gróðageðvillunnar, 
bjóða helmingsafslátt 
ef keypt er fyrir 
allan peninginn 
eða meira. 
Strýtroðnir lundar 
og Dettifoss-seglar. 
Jóhannes grætur 
úr gröfinni 
og Björgólfur lærir 
að skammast sín 
fyrir næstu kynslóðir
fiskvinnslufólksins;
gleymdu gæludýr 
blóðbundnu eyjunnar
úti við sundin.
Gvuð blessi Hörpuna 
og stöðumælagjöld

En meðan lygin 
drekkir sér
í áfengum tárum
loforða sinna
gagnvart lífinu
og gleymir
líður mér vel
því 
ég mundi sannleikann 
drakk hann allan
drakk mig allsgáðan
og stútfullan 
af ást