| Af hverju dó hann í lífsins blóma? Sá hann aldrei hamingjunnar ljóma? Einn sá tignarlegasti er hafði sést en endaði flugið í grút fyrir rest. |
Samansafn af öllu því efni sem ég hef talið vert að skilja eftir ritað á blaði eða tölvutæki.
Translate
mánudagur, 30. desember 2013
Fuglinn
sunnudagur, 29. desember 2013
Ég vil skrifa skemmtileg ljóð
Ég vil skrifa skemmtileg ljóð,
skreyta orðin með gleði.
Með Braga list og „brútal“ móð,
breyta ég vildi leiðu geði.
En bergmál berst í gegnum mig,
sem bindur mig til þeirra verka
að berjast hart mót harðræði
og að hata alla tilvist klerka.
Að sjá í gegnum síðan allt
og senda lögvaldi tóninn.
Kunna að berja stálið kalt
og kyndil bera vetrarnónin.
Að elska lífið og allt sem er,
og í andartakinu eina lifa.
Heillandi virðist sú hugmynd mér,
en hentar mér ei er ég skrifa.
Því munu ljóð mín döpur vera,
myndskreytt bláum litbrigðum.
Orð í taumi blönduð með trega
til að létta á mínum birgðum.
skreyta orðin með gleði.
Með Braga list og „brútal“ móð,
breyta ég vildi leiðu geði.
En bergmál berst í gegnum mig,
sem bindur mig til þeirra verka
að berjast hart mót harðræði
og að hata alla tilvist klerka.
Að sjá í gegnum síðan allt
og senda lögvaldi tóninn.
Kunna að berja stálið kalt
og kyndil bera vetrarnónin.
Að elska lífið og allt sem er,
og í andartakinu eina lifa.
Heillandi virðist sú hugmynd mér,
en hentar mér ei er ég skrifa.
Því munu ljóð mín döpur vera,
myndskreytt bláum litbrigðum.
Orð í taumi blönduð með trega
til að létta á mínum birgðum.
Labels:
Gleði,
Tækifærisvísur,
Úrvinnsla,
Þunglyndi
Hvar er húfan mín?
Hvar, ó hvar ertu mín indæla húfa?
Ég glaður þig fékk og á höfðinu bar
en sár nú ég er því þú ert ekki þar.
Hvar, ó hvar ertu mín ylríka húfa?
Mun höfuð mitt þann harmleik líða,
að þurfa undan frosti að svíða?
Hvar, ó hvar ertu mín uppáhalds húfa?
(ég týndi húfunni minni)
Ég glaður þig fékk og á höfðinu bar
en sár nú ég er því þú ert ekki þar.
Hvar, ó hvar ertu mín ylríka húfa?
Mun höfuð mitt þann harmleik líða,
að þurfa undan frosti að svíða?
Hvar, ó hvar ertu mín uppáhalds húfa?
(ég týndi húfunni minni)
Kær kveðja, spegillinn þinn.
Lít ég augum lífið á,
last ég yfir það mála.
Þykir mér það sárt að sjá;
þrautir og sorgir ráða.
Af enni þínu drjúpa dropar hroka;
deyjandi myndir af stolti þínu stranga.
Þú hélst þig persónu rétta,
slétta -
en gafst ekki gaum þeirri staðreynd
að á endanum er ég þú.
last ég yfir það mála.
Þykir mér það sárt að sjá;
þrautir og sorgir ráða.
Af enni þínu drjúpa dropar hroka;
deyjandi myndir af stolti þínu stranga.
Þú hélst þig persónu rétta,
slétta -
en gafst ekki gaum þeirri staðreynd
að á endanum er ég þú.
Fýla
Fari nú allir fjandans til;
fávitar sem og skækjur.
Ljótt er útlitið og ekkert ég vil
annað en að vera sprækur.
fávitar sem og skækjur.
Ljótt er útlitið og ekkert ég vil
annað en að vera sprækur.
föstudagur, 27. desember 2013
Confessions of a Schizo
Unforgotten sins
I lock so deep within.
Though sticks and stones
may brake my bones,
still the risk I take.
Moments move on by
in the magic of the night
and swiftly grab my senses;
my heart and mind
fully comprehends.
Nightmares ride over
the fields of my heart.
Goblins run in every corner of the dark,
rip through me and tear apart
every piece and bit.
Still, I just laugh at it.
þriðjudagur, 24. desember 2013
Málfrelsi
Ég veit ekki hvaðan þau komu, hvert og eitt og sér, en vingjarnlegri vofur gat ég ekki ímyndað mér. Hafði reyndar aldrei ímyndað mér neitt yfirnáttúrulegt yfir höfuð, hvað þá yfir höfuð náttúrunnar sjálfrar í heild sinni. En einmitt þannig vissi ég allavega, og að minsta kosti, að þau gátu ekki verið annað en raunveruleg...
En hvað veit ég?
En hvað veit ég?
Allavega. Þarna voru þau komin. Og síðan hefur heimsóknunum ekki lint. Þau koma og fara. Sumir stoppa stutt samt, meðan aðrir bara setjast niður, hvíla sálina og stara á samferðalanga sína - eða útum gluggann. Og sumir horfa í gólfið eða fá sér Tópas. Þeir eru hættir að selja bláan Ópal. Hann innihélt líka klóróform. Það er skrítið efni, notað til svæfinga.
Veggirnir segja sögur og endurspegla hugarfar "bakpoka-kynslóðarinnar" í öllum mögulegu lituðum orðum, bundnum - stundum í setningar. Því ráða hendingar. Í raunveruleikunum ættu þessir veggir samt að vera hvítir. Þá á ég við raunveruleikann sem við lásum um í skólabókunum, blöðunum - sáum í sjónvörpunum. En hann er auðvitað ekki til - raunveruleikinn, hann er plat; óraunhæft frat. Listin er hinn lifandi sannleikur. Slett, strokin, krotuð, teiknuð - útreiknuð og nett uppsett. En það er önnur saga.
Vals hafði orðið fyrir valinu. Vofurnar voru á einu máli um það, enda flestar dánar burt úr heiminum á þeim tíma sem dansinn var djarfari en klám. Það var þá. En ekki núna. Svo ég geri ekki söguna snúna... og talandi um klám og þess lúnu, fúnu stoðir - það er lítið vitið sem við það loðir, að viti... Bara hamsleysi, grams og geysi-sviti; mæðandi og másandi skrokka. Lygi. Samkvæmisdans er heldur ekkert nema skrúðað fans getnaðar, og þú kennir börnunum þínum að hlaupa í kringum greni! Tisk, tisk!
Vofurnar eru vinir mínir. Þó ég hafi engin samskipti átt við þær þannig lagað, þá veit ég, og hef lært það hvernig sannir vinir þaga... Hljóðið er kalt, en vel haft til haga - út látið. Heiðrað til upphafningar. Skellurinn kemur þegar síst er viðbúist. Fortíð og framtíð skellt í núið - fyllt af ást. Vofurnar eru fullar af víni. Þær þjást...
Tilkoma þeirra er til að sýna lífið í raun og kunna það lofa, rétt. En hugurinn neitar að sofa. Reykjandi, ráfandi - rýr andi af velsæmis vitsmunum. Að ráfa annað er kannski unun en ekki til lengdar. Þegar á hólminn er komið.
Vofurnar vinda sér upp til virðingar vindinum... Vesæld og vesen en, en, en, leyfðu mér að ráða til dáða þá deyfðu staðreynd sem með leynd er notuð í lotum.
Það hjálpar að láta eftir. Dagurinn í dag, er dagurinn í gær... og á morgun. Hver og einn fullur af erfiðleikum - sorgum... En þegar uppskorin er sú borgun sem í kjölfarið fylgir sérðu að á endanum gefur lífið engan afslátt. Kannski sátt, en ekkert meira.
Viljinn er sterkur, en vonin er veik.
Vofurnar gera sér að leik að vera til staðar fyrir hvora aðra - og þegar allt virðist komið til að vera, þær fara.
Stinga af, af því bara...
Stinga af, af því bara...
Labels:
Heimspeki,
Saga,
Úrvinnsla,
Vangaveltur
miðvikudagur, 4. desember 2013
Það er heitt á könnunni
Englarnir brustu
í grát af gleði
þegar þú fæddist,
því þú ert svo sæt
- falleg.
Mér finnst það
samt fara
allan hringinn
yfir í súrt.
En það má reyna
með öllum
alheimsins kryddum
að krydda -
fegra þá áferð
sem þú veitir
hinni líðandi stund.
En það er
ekki hægt.
Því þú ert
fullkomnun
orðsins "fegurðar".
Þú ert súrsæt;
í gegn-
um
myndlíkingar
mínar
sérðu sjálfa
þig best.
Elskan, ástin -
engillinn minn...
þú veist hver þú ert.
Kíktu í kaffi.
í grát af gleði
þegar þú fæddist,
því þú ert svo sæt
- falleg.
Mér finnst það
samt fara
allan hringinn
yfir í súrt.
En það má reyna
með öllum
alheimsins kryddum
að krydda -
fegra þá áferð
sem þú veitir
hinni líðandi stund.
En það er
ekki hægt.
Því þú ert
fullkomnun
orðsins "fegurðar".
Þú ert súrsæt;
í gegn-
um
myndlíkingar
mínar
sérðu sjálfa
þig best.
Elskan, ástin -
engillinn minn...
þú veist hver þú ert.
Kíktu í kaffi.
þriðjudagur, 3. desember 2013
Uppvakning
Einhversstaðar
beið svartur fugl,
beið svartur fugl,
svo hann skellti
lokinu á og henti
frá sér bútnum.
lokinu á og henti
frá sér bútnum.
(Kakan var mygluð undir)
Ég geng sporléttur
meðfram girðingu.
meðfram girðingu.
Það er haldið
í hönd mína.
í hönd mína.
Allt í kring grænir
betrekktir veggir.
betrekktir veggir.
(Kona situr við rúmstokk drengsins, og dottar)
Ég horfi,
utan við mig,
á svartan sjó.
utan við mig,
á svartan sjó.
-Maðurinn er kolvitlaus!
"Hér er alltaf sól"
- svo grær yfir þetta mosi.
laugardagur, 30. nóvember 2013
-Hugleiðing dagsins, 30.nóvember-
"Ég" er, og
"þú" skalt ekki
mig að fífli hafa.
Þú skalt ekki
leggja nafn mitt,
né þitt,
við hégóma.
Minnstu þess að hafa
hvíldardaginn næs og kósí,
þægilegan í alla staði.
Og heiðra skaltu
föður þinn og móður.
Þú skalt ekki morð fremja,
hvort sem á sál eða líkama.
Þú skalt ekki vera hóra
og þú skalt heldur ekki stela.
Þú skalt ekki ljúga
að vinum þínum
né vandamönnum -
eða nokkrum öðrum.
Þú skalt ekki girnast
hús annara.
Þú skalt ekki girnast
eignir annara manna.
Þú skalt heldur ekki
byggja hús þitt á sandi.
Og síðast en ekki síst,
ekki halda mig þig!
---
Bújaka!
Skrifaðu bók um það!
...en ég elska þig samt.
Þetta ætla ég
að gefa þér,
heilshugar,
og ég vona
að fá eins til baka.
Ef ekki,
þú um það.
Maðurinn uppsker
eftir því
sem hann sáir.
föstudagur, 8. nóvember 2013
Frá A til Ö
Èg vaknaði.
Èg burstaði.
Èg skeit.
Èg skeindi.
Ég sturtaði.
Èg klæddi mig.
Èg helti uppá.
Èg smurði brauð.
Èg reykti og sötraði.
Èg las blöðin.
Èg hugsaði.
Èg tòk allt til.
Ég hafði mig til.
Èg fór út.
Èg tók strætó.
Èg skoðaði fólk.
Fór í búðina.
Èg verslaði.
Èg hló.
Ég las ljóð.
Èg trúði.
Èg treysti.
Èg sparkaði í stein.
Ég laug.
Èg sveik.
Ég fór í ríkið.
Èg fann bjargræði.
Èg drakk það.
Ég hringdi.
Ég hitti mann.
Ég keypti eitthvað.
Èg át efni.
Ég reykti restina.
Èg fèkk mèr dóp.
Èg fèkk mèr tvö dóp.
Ég gekk götur.
Ég kýldi í fötu.
Ég datt út.
Èg yfirgaf.
Ég fór.
Èg dó...
Ég vaknaði.
Èg burstaði.
Èg skeit.
Èg skeindi.
Ég sturtaði.
Èg klæddi mig.
Èg helti uppá.
Èg smurði brauð.
Èg reykti og sötraði.
Èg las blöðin.
Èg hugsaði.
Èg tòk allt til.
Ég hafði mig til.
Èg fór út.
Èg tók strætó.
Èg skoðaði fólk.
Fór í búðina.
Èg verslaði.
Èg hló.
Ég las ljóð.
Èg trúði.
Èg treysti.
Èg sparkaði í stein.
Ég laug.
Èg sveik.
Ég fór í ríkið.
Èg fann bjargræði.
Èg drakk það.
Ég hringdi.
Ég hitti mann.
Ég keypti eitthvað.
Èg át efni.
Ég reykti restina.
Èg fèkk mèr dóp.
Èg fèkk mèr tvö dóp.
Ég gekk götur.
Ég kýldi í fötu.
Ég datt út.
Èg yfirgaf.
Ég fór.
Èg dó...
Ég vaknaði.
miðvikudagur, 23. október 2013
Til Sunnu Lindar
Brosmild, ljúf og einatt góð,
blíðu gefin í hreinni mynd.
Sælleg, fjörug; göfugt það fljóð
finnst mér hún Sunna Lind.
Kátínu gefin og kæti frá smitar
hvar sem fæti niður hún stígur.
Lífsgleði friðar hún lætur af vita
ef leiðindi aðra grætir og svíður.
-
Þér bata ég óska, og velfarnaðar,
og eigir þú ævina lukku-spunna.
Að barnið þitt dafni og'þú'til batnaðar
blessunar-lindin þín, Sunna!
blíðu gefin í hreinni mynd.
Sælleg, fjörug; göfugt það fljóð
finnst mér hún Sunna Lind.
Kátínu gefin og kæti frá smitar
hvar sem fæti niður hún stígur.
Lífsgleði friðar hún lætur af vita
ef leiðindi aðra grætir og svíður.
-
Þér bata ég óska, og velfarnaðar,
og eigir þú ævina lukku-spunna.
Að barnið þitt dafni og'þú'til batnaðar
blessunar-lindin þín, Sunna!
mánudagur, 21. október 2013
Lífið er í „opnum D“
Í upphafi til urðu himinn og jörð
og hafið fylgdi á eftir fljótt.
Til varð úr takti hin fullkomna gjörð
tímans, svo skiptust dagur og nótt
í aðskilin hugtök, en stóðu þó vörð,
órjúfanleg - föst í sínu eigin þreki
til eilífðar. Áætlunin var til lögð
áður en erindin urðu og allt enda tók.
Með þrömmum, þungum skrefum
þvingað var fram hið fyrsta líf.
Alin til veru hver einasta tegund
og tilgang gefið um ókomna tíð
að uppfylla. Hin einasta, fyrsta
afleiðing tilurðar, voru hljóðbylgjur
í taktfylgjandi sveiflum; titrandi,
temjandi til tilvistar innsta eðli efnisins.
-
Fæðandi frelsinu framfarir,
tónlistin telst tákn tilgangsins.
og hafið fylgdi á eftir fljótt.
Til varð úr takti hin fullkomna gjörð
tímans, svo skiptust dagur og nótt
í aðskilin hugtök, en stóðu þó vörð,
órjúfanleg - föst í sínu eigin þreki
til eilífðar. Áætlunin var til lögð
áður en erindin urðu og allt enda tók.
Með þrömmum, þungum skrefum
þvingað var fram hið fyrsta líf.
Alin til veru hver einasta tegund
og tilgang gefið um ókomna tíð
að uppfylla. Hin einasta, fyrsta
afleiðing tilurðar, voru hljóðbylgjur
í taktfylgjandi sveiflum; titrandi,
temjandi til tilvistar innsta eðli efnisins.
-
Fæðandi frelsinu framfarir,
tónlistin telst tákn tilgangsins.
Labels:
Heilræði,
Heimspeki,
Lærdómur,
Vangaveltur
Lifnað við frá leti
Viðjar leysast,
vonir geysast,
úr volgum í sjóðheitar.
Órar þeytast,
allir leitast við
að í ávinninga að breyta.
Því farin til fjandans er þreytan.
Fast mun ég endurkomu hennar neita.
vonir geysast,
úr volgum í sjóðheitar.
Órar þeytast,
allir leitast við
að í ávinninga að breyta.
Því farin til fjandans er þreytan.
Fast mun ég endurkomu hennar neita.
föstudagur, 18. október 2013
Getur þú mér greiða gert?
Er ferðast þú yfir fjöllin háu
fyrir handan þar
sem gulli rignir
sem gulli rignir
niður við sýslumörkin,
minnstu mín helst
meðan þú dvelur þar
við stúlkuna sem eitt sinn
ég þráði mest.
Er ferðast þú yfir fjöllin bláu
fyrir handan þar
sem demantar drjúpa
sem demantar drjúpa
af himni við sýslumörkin.
Gættu að einu hvað helst
meðan þú dvelur þa,r
að verðleika sinna kosti
hún sjái og njóti.
Er ferðast þú yfir háu fjöllin bláu
fyrir handan þar
sem gnægtir hlaupa
sem gnægtir hlaupa
niður hlíðar sýslumarkanna.
Máttu til hennar skila
kveðju kærri frá mér -
að fögur og heilbrigð
hún sátt sína fái.
The creation of time
| Listen carefully and the truth you shall see... What we know as "time" is an absurd invention. For time as we know it isn't part of this world, it was given to existence by the offsprings of evil: The ego of the mind and it's sister - pride. So please see through their lies! That is, the importance of time. Just ignore it - relax and just keep on snoozing. |
Labels:
Enska,
Gömlu ljóðin (eldri en ca.10 ára),
Heilræði
Confirmation of the realm
Whirlwind! United chaos! - a splash of sincerity added with caution;
a abstract course of interactive perception, witch normally people
choose to call a reaction to ones intervention of some sort. It helps,
sometimes.
I conclude all behaviour by the movement it draws upon reality, the one I
myself do not follow in anyway possible. I choose to be free to roam alone
through allies and streets. This sentence was given to me by the publics purity
in absence of any recognition to others wants, beliefs and devotions.
This bothers me and my whole reality, when it catches me off-guard
and disables - making everything more dreadful and harder as I begin
to feel unstable from the trembling ground beneath my feet, shaking
like a full-blown Parkinson's decease.
---
Things fall into slavery of gravity; the laws of physics and the greatest
mathematical structure - which equally stands behind any given pattern
or function in a smallest fragment of an atom.
All is one in nature; a living being behind everything. It calmly flows
to and fro, through every form of matter, reflecting truth to those who
show signs of being in need. It is a genuine spirit - a conscious mind
of infinite wisdom, a wonderful presence of the self within everything.
---
Finally I realise; see through everything and nothing - synchronously -
I've come into touch with the true "being". At last I perceive concrete
recognition of reality...
- Entirety exists in me.
Hugsað við dómkirkju Reykjavíkur
„Það sem þulið er upp,
er þaggað niður“.
- og í þeim orðum sló klukkan hálf.
„Hið göfuga gubb;
hinn gefni kliður“.
- ginningin kemur sér aftur í mál.
„Nautn er að njóta
neyslunnar - í neyð“.
- nútímans sjálfsagða blekking og tál.
er þaggað niður“.
- og í þeim orðum sló klukkan hálf.
„Hið göfuga gubb;
hinn gefni kliður“.
- ginningin kemur sér aftur í mál.
„Nautn er að njóta
neyslunnar - í neyð“.
- nútímans sjálfsagða blekking og tál.
Heimspekileg vangavelta #42
Elja alin feit
til eilífðar.
Slitin, sundurleit -
svæfð til kyrrðar.
Mótlætið magnast
í mergð andvana dygða.
Svívirða svefns
svæsin ræður.
Mædd til megns
mæður og bræður.
Gáskinn ei gagnast
gefjun sakleysis sifja.
En rúnir ristar
til ráða dáða
lífsins, vits og lista.
Samrýming söngva
sálanna. Réttlæti
ragna og niðja.
til eilífðar.
Slitin, sundurleit -
svæfð til kyrrðar.
Mótlætið magnast
í mergð andvana dygða.
Svívirða svefns
svæsin ræður.
Mædd til megns
mæður og bræður.
Gáskinn ei gagnast
gefjun sakleysis sifja.
En rúnir ristar
til ráða dáða
lífsins, vits og lista.
Samrýming söngva
sálanna. Réttlæti
ragna og niðja.
Hugsað í Hjartagarðinum (um mitt sumar 2013)
Ég ríkulega má
hamingju reyna'að
upphefja í hjarta -
í Hjarta-garðsins
múraða hjarta...
Þar með ég reyni
að ráða þá gátu
er ríkjum ræður í
ringluðum huga
mínum rauðum:
„Hvar er samhugurinn;
einingin, nándin - sálin?“
---
Aðeins veikar
verur nú saman
koma neyddar -
óskandi betrunar
brostinna vona,
byggðra á vímu
gærdagsins -
og fráhvörfum
dagsins í dag.
---
„Hvað varð um
sáttina sem
vitund ásta gróf
í þennan reit?“
...hún flutti
vízt uppí Breiðholt
einsog flestir
sem á miðbæinn reyna!
hamingju reyna'að
upphefja í hjarta -
í Hjarta-garðsins
múraða hjarta...
Þar með ég reyni
að ráða þá gátu
er ríkjum ræður í
ringluðum huga
mínum rauðum:
„Hvar er samhugurinn;
einingin, nándin - sálin?“
---
Aðeins veikar
verur nú saman
koma neyddar -
óskandi betrunar
brostinna vona,
byggðra á vímu
gærdagsins -
og fráhvörfum
dagsins í dag.
---
„Hvað varð um
sáttina sem
vitund ásta gróf
í þennan reit?“
...hún flutti
vízt uppí Breiðholt
einsog flestir
sem á miðbæinn reyna!
Labels:
Tvíræðni,
Tækifærisvísur,
Vangaveltur
Upphafning eyðinleggingar
Skarplega var athugað
að skynsemi arðbærrar
frændsemi þegar gengið var
of langt, „ó“ -eða- viljandi.
Þó næstum því drukknað hafi í
dróma sorans hin algilda, eilífa
skilgreining - þá lævís má
sindin teljast og lúmsk.
Sem sannleikur er lygin lofsungin
meðan staðreyndum er afneitað.
Þess vegna á milli vafa og vitleysu
skal velja - og þó útkoman sé súr
þá sátt mun veitast úr ágreiningi
þeirrar hneysu sem kveljarar
tungunnar hreinnar ala hinum
raunsæu gildum misvísandi ráða.
Svo hlustið nú systur - bræður á
regluverk þeirra dáða, sem búa í
vitundum hala og sprunda! Þeirra
sem það stunda „að verann“ í
hring-eltingaleiknum eilífa.
Þannig auðveldlega virðist á brýnið
að leggja brúnir þeirra „orða-eggja“,
að temja til allsherjar þekkingarhinar blindu blekkingar; leifa lýðnum
að sjá lygar sinna glötuðu kenninga
sem byggja upp mynd þeirra lifandi
dauðu og rotnandi menningar.
að skynsemi arðbærrar
frændsemi þegar gengið var
of langt, „ó“ -eða- viljandi.
Þó næstum því drukknað hafi í
dróma sorans hin algilda, eilífa
skilgreining - þá lævís má
sindin teljast og lúmsk.
Sem sannleikur er lygin lofsungin
meðan staðreyndum er afneitað.
Þess vegna á milli vafa og vitleysu
skal velja - og þó útkoman sé súr
þá sátt mun veitast úr ágreiningi
þeirrar hneysu sem kveljarar
tungunnar hreinnar ala hinum
raunsæu gildum misvísandi ráða.
Svo hlustið nú systur - bræður á
regluverk þeirra dáða, sem búa í
vitundum hala og sprunda! Þeirra
sem það stunda „að verann“ í
hring-eltingaleiknum eilífa.
Þannig auðveldlega virðist á brýnið
að leggja brúnir þeirra „orða-eggja“,
að temja til allsherjar þekkingarhinar blindu blekkingar; leifa lýðnum
að sjá lygar sinna glötuðu kenninga
sem byggja upp mynd þeirra lifandi
dauðu og rotnandi menningar.
- Upphafning eyðinleggingar -
Labels:
Ádeila,
Heimspeki,
Tvíræðni,
Vangaveltur
Harpa (reiðislestur yfir húsi, fluttur í ölæði)
Þú útsýni mínu stelur, þú skakka gler-kássa frá Kína!
Ég veit að sjálfur Ingólfur myndi meira en glaður
og af djörfung brjóta þig niður og bramla...
Þú ert tákn um oflæti lítilla manna
sem smánaðir voru af sjálfum sér
í sturtuklefum bernsku sinnar!
Þú ert tákn um taumleysi fíkilsins
og takmarkaða vitsmunahætti.
Þú ert standandi sönnun virðingarleysis.
Þú ert hin eina sanna „mella“ lands og þjóðar.
Þú ert óþarfa „rúnk“ til viðurkenningar menningar
sem keypt var fyrir stolna peninga ófæddra barna.
Harpa - ég hata þig.
Ég veit að sjálfur Ingólfur myndi meira en glaður
og af djörfung brjóta þig niður og bramla...
Þú ert tákn um oflæti lítilla manna
sem smánaðir voru af sjálfum sér
í sturtuklefum bernsku sinnar!
Þú ert tákn um taumleysi fíkilsins
og takmarkaða vitsmunahætti.
Þú ert standandi sönnun virðingarleysis.
Þú ert hin eina sanna „mella“ lands og þjóðar.
Þú ert óþarfa „rúnk“ til viðurkenningar menningar
sem keypt var fyrir stolna peninga ófæddra barna.
Harpa - ég hata þig.
Manstu..?
Manstu skálmaldir og skarkalann
sem skelfdu okkur í bernsku?
Manstu?
Manstu ókyrrðina, óeftirsótta,Manstu?
eyðinleggja værð næturinnar - aftur og aftur?
Manstu óráð foreldra og forráðamanna,Manstu?
firrta ofbeldið; oflætið í efni og anda?
Manstu einmannaleikan, tárin grátinManstu?
og sárin sem í sálunum komu sér fyrir?
Manstu loksins þú sagðir mér frá hvernig þér liðiManstu?
og ég þóttist svo sannarlega kannast við það sama?
Manstu þegar við sofnuðum út frá látunum,...manstu?
huggandi hvors annars huga - samt hrædd?
Vingjarnleg vofa
Einsog vofa með veggjum ég geng,
vafra um í taumum sólarhringa.
Staulast einn og slæ minn streng
meðan ég stoltið niður þvinga.
ásakanir, mönnum bundnar.
Sögur frekar ég segi af mér,
sannar eða uppfundnar.
vafra um í taumum sólarhringa.
Staulast einn og slæ minn streng
meðan ég stoltið niður þvinga.
- Elju blandinn er minn efi.Engu ég lofa né læt ég í té
ásakanir, mönnum bundnar.
Sögur frekar ég segi af mér,
sannar eða uppfundnar.
- Gefjun er yfir mig gefin.
Explaining good times
It started out with a little word,
whispered so gentle - so softly
that only few heard its message
brought in to this world.
What followed was that
will later be known as
the truth of our earths message.
Still living, through millennia,
giving its essence through
the most sacred song - true laughter.
Cooperative challenge
between two different states
of lifes balance;
dimensions of extensions
- spiraling energy of my vitality
to sense what the mind enhances.
Now, I've reached the point
where I must rest my thoughts
of mania for a while
to avoid hysteria
and continuous crimes
of life's lies.
For over time they've grown
more out of context
from their own,
mainly this one memory
that paves the road
for my insanity.
Even though I believed
so surely I'd reached a conclusion,
an understanding - a satisfying solution,
it returned and dug even deeper
into the back of my delusions
and now sleeps there.
So, I fear destruction
sprung from unintention
brought to existence
by my own expansion
of deeper hopes and expectations...
---
And so on,
with an answer
I carefully found
in the depths of
this sterilized ground,
my mind has received
for its harvest.
I took baptism to stop
my minds compulsiveness
from falling each time
in routine of behavior
so dreadfully mean
that it pulls apart my abillity
to confront my moments in reality
- if so could be called -
at the end of it all.
So, I must let go
of ideas taking place
misguided, crooked -
in my mind full of haze,
and to this date
have build expectations
on the subject of
human communication
that I, so full of pride
and ignorance
stood up for - and
was raised to believe
to fit my realization.
To me they are filled
with difficulties
which grow and grasp
an understanding of being
able to turn a switch
of ability - giving a glimpse
of hints, to let go into the abyss.
Still, the battle of choices
that inside me arouses
I do not know how to handle.
So I sink into a hole
where a whole
different level I reach.
It is there where
I meet my devil
in surroundings
of consistency
of peace, serenity
and ease.
It was then, I saw
a understanding sight;
the great connection
of matter and light
- a pure delight -
that normally I couldn't decide
between words to determine
my feelings;
those disabled meanings
of spoken words
sprung from my tongue.
Hurling down they rumble,
and underline my sentences,
those who float above
the true meaning of all -
only created to fall.
Forms of sounds and dialects
surely I do respect; the smallest
fragment of lives true meaning,
sought between lines of sleep
and daydreaming. My capability
literally forms tones and rhythms
of respect to the people I meet
and see in my life on the streets.
I honestly believe
- for my own good, obviously -
that, to loosen up a little
by slowing down and finally getting
my feet to the ground must be
the choice I should give a try.
Therefore I must shake off
my pains and fears,
my mental tracks pay'off
and firmly clear.
Start taking care
- if I dare -
of my own self and build up
my bodys health to fit my spirits
truth and wealth.
So, my rambling, please,
and disturbance excuse!
I give my deepest gratitude
to all, who so gratefully gave
their personal time and attention,
making ways of revelations for
reconciliation in my stubborn
and oh so childish mind.
At last, I choose my words
with the intention to show
my gratitude in a verbal
connection with the selection
of thoughts I develop concerning
the recognition I give towards your actions.
- Peace to ya'll
and may rays
of grace
shine throughout
your lifes.
whispered so gentle - so softly
that only few heard its message
brought in to this world.
What followed was that
will later be known as
the truth of our earths message.
Still living, through millennia,
giving its essence through
the most sacred song - true laughter.
Cooperative challenge
between two different states
of lifes balance;
dimensions of extensions
- spiraling energy of my vitality
to sense what the mind enhances.
Now, I've reached the point
where I must rest my thoughts
of mania for a while
to avoid hysteria
and continuous crimes
of life's lies.
For over time they've grown
more out of context
from their own,
mainly this one memory
that paves the road
for my insanity.
Even though I believed
so surely I'd reached a conclusion,
an understanding - a satisfying solution,
it returned and dug even deeper
into the back of my delusions
and now sleeps there.
So, I fear destruction
sprung from unintention
brought to existence
by my own expansion
of deeper hopes and expectations...
---
And so on,
with an answer
I carefully found
in the depths of
this sterilized ground,
my mind has received
for its harvest.
I took baptism to stop
my minds compulsiveness
from falling each time
in routine of behavior
so dreadfully mean
that it pulls apart my abillity
to confront my moments in reality
- if so could be called -
at the end of it all.
So, I must let go
of ideas taking place
misguided, crooked -
in my mind full of haze,
and to this date
have build expectations
on the subject of
human communication
that I, so full of pride
and ignorance
stood up for - and
was raised to believe
to fit my realization.
To me they are filled
with difficulties
which grow and grasp
an understanding of being
able to turn a switch
of ability - giving a glimpse
of hints, to let go into the abyss.
Still, the battle of choices
that inside me arouses
I do not know how to handle.
So I sink into a hole
where a whole
different level I reach.
It is there where
I meet my devil
in surroundings
of consistency
of peace, serenity
and ease.
It was then, I saw
a understanding sight;
the great connection
of matter and light
- a pure delight -
that normally I couldn't decide
between words to determine
my feelings;
those disabled meanings
of spoken words
sprung from my tongue.
Hurling down they rumble,
and underline my sentences,
those who float above
the true meaning of all -
only created to fall.
Forms of sounds and dialects
surely I do respect; the smallest
fragment of lives true meaning,
sought between lines of sleep
and daydreaming. My capability
literally forms tones and rhythms
of respect to the people I meet
and see in my life on the streets.
I honestly believe
- for my own good, obviously -
that, to loosen up a little
by slowing down and finally getting
my feet to the ground must be
the choice I should give a try.
Therefore I must shake off
my pains and fears,
my mental tracks pay'off
and firmly clear.
Start taking care
- if I dare -
of my own self and build up
my bodys health to fit my spirits
truth and wealth.
So, my rambling, please,
and disturbance excuse!
I give my deepest gratitude
to all, who so gratefully gave
their personal time and attention,
making ways of revelations for
reconciliation in my stubborn
and oh so childish mind.
At last, I choose my words
with the intention to show
my gratitude in a verbal
connection with the selection
of thoughts I develop concerning
the recognition I give towards your actions.
- Peace to ya'll
and may rays
of grace
shine throughout
your lifes.
Queen of the heavens
Around the high and endless skies
hyperbolically she flies
- this queen of the heavens.
Amazingly, she over dominates
time and space; humanities fate
- this queen of the heavens.
Without a blink she does create
tremendous feelings; a higher state
- this queen of the heavens.
Her hair is brighter than the sun.
Her eyes of diamonds are worth millions!
- this queen of the heavens.
They lead astray, yet make my day;
all my troubles casts away
- this queen of the heavens.
Her closeness is of true divine;
my consciousness brings out of time
- this queen of the heavens.
---
Now, at the end, I've lost my mind;
through the deepest oceans I tried to find
- that queen of the heavens.
Labels:
Enska,
Gömlu ljóðin (eldri en ca.10 ára),
Mannlýsing,
Skot,
Vitfirring
Misskilningur ásta
Skakt ég skynjaði
skap mitt og þel,
er brotinn ég byrjaði
barnsmóður með.
Allan mig engdi
ef eirði ei hjá.
Gaf ég gímaldi
galdranna seið,
til ásta og óskandi
eftir ég beið.
Staðfestu strengdi
í steypunnar stál.
En misbrestir mynduðust
í mæðandi martraðir
sem sálirnar sundruðu
og söktu djúpt í kafið.
Ráðþrota reyndi ég
raunum flúið frá.
Þá leit ég yfir lífið
og lagði á það mat;
því sjórnlausa stríði
stýrt betur ég gat.
Svo allsgáður ég gengdi
og grið reyndi að fá.
En góðmennskan galt mér
geðveiki til baka!
Því vísast þannig fer
þegar vá-raunir skaka.
Lífinu eftirlengdi,
láku af vöngum tár.
En nú stend ég sterkur,
og stefni á bata!
Horfinn er'nú sár hausverkur...
Nú „heim“ ég aftur rata!
Þá tilfinningar loks ég tengdi
og tamdi burt mín sálarsár.
skap mitt og þel,
er brotinn ég byrjaði
barnsmóður með.
Allan mig engdi
ef eirði ei hjá.
Gaf ég gímaldi
galdranna seið,
til ásta og óskandi
eftir ég beið.
Staðfestu strengdi
í steypunnar stál.
En misbrestir mynduðust
í mæðandi martraðir
sem sálirnar sundruðu
og söktu djúpt í kafið.
Ráðþrota reyndi ég
raunum flúið frá.
Þá leit ég yfir lífið
og lagði á það mat;
því sjórnlausa stríði
stýrt betur ég gat.
Svo allsgáður ég gengdi
og grið reyndi að fá.
En góðmennskan galt mér
geðveiki til baka!
Því vísast þannig fer
þegar vá-raunir skaka.
Lífinu eftirlengdi,
láku af vöngum tár.
En nú stend ég sterkur,
og stefni á bata!
Horfinn er'nú sár hausverkur...
Nú „heim“ ég aftur rata!
Þá tilfinningar loks ég tengdi
og tamdi burt mín sálarsár.
Labels:
Gleði,
Reiði / gremja / depurð,
Von
Samferða
Ég sá þig stíga
úr svarta myrkri,
inní ljós ljómandi loga
lágbognu stálrisa torgsins.
Þú varst í grænum jakka, ég í brúnum.
Báðir prýddir hnöppum
sem við gleymdum að hneppa.
Svo fóru litirnir ekki saman.
En úr myrkri varð ljós
einsog vísast verður.
Lauk þá að lokum því
sem hafið var - varð
og nú verður á ný - ei meir.
Ferðin var farin í fljótfærni
frárra okkar þráa
um uppfyllingu til lífs og ásta
samferða mannveru, sem
tilbúin vildi gjalda hið sama
af öllu sínu hjarta.
En dula djöfullegra lasta og bresta
hékk til og ól sig feita í skúmaskoti.
Á sínum tilfinningarlegum flótta,
en að endingu var þvinguð í ljósið.
---
Þá byrjaði ballið af alvöru,
umbúið beiskju og særindum
frá heift, heimsku og hugveilu.
Að endingu það endaði af alúð
að sönnum skagfirskum stíl:
Blóðugt og baðað brjálæði!
(en einsog dýrðlingar, við buðum hinn vangan)
úr svarta myrkri,
inní ljós ljómandi loga
lágbognu stálrisa torgsins.
Þú varst í grænum jakka, ég í brúnum.
Báðir prýddir hnöppum
sem við gleymdum að hneppa.
Svo fóru litirnir ekki saman.
En úr myrkri varð ljós
einsog vísast verður.
Lauk þá að lokum því
sem hafið var - varð
og nú verður á ný - ei meir.
Ferðin var farin í fljótfærni
frárra okkar þráa
um uppfyllingu til lífs og ásta
samferða mannveru, sem
tilbúin vildi gjalda hið sama
af öllu sínu hjarta.
En dula djöfullegra lasta og bresta
hékk til og ól sig feita í skúmaskoti.
Á sínum tilfinningarlegum flótta,
en að endingu var þvinguð í ljósið.
---
Þá byrjaði ballið af alvöru,
umbúið beiskju og særindum
frá heift, heimsku og hugveilu.
Að endingu það endaði af alúð
að sönnum skagfirskum stíl:
Blóðugt og baðað brjálæði!
(en einsog dýrðlingar, við buðum hinn vangan)
fimmtudagur, 17. október 2013
Skelfing
Ég sé skýin opnast
- hliðra sér til hliða.
Rofa og rifjast upp
- riðla sér áfram,
með falsaðan miða.
Ég sé ógurleg loftskip
með sín meðfylgjandi læti,
gera vart við sig
og vekja upp hjá mér kæti.
Skjálfandi líkaminn...
skýtur til skakka sá ami.
Krefjandi, gylltu trompetin hljóma
og hefja upp tóna himnanna;
óma í uppljóma sinn
„karamellu-djass“
með blúsuðum rjóma.
Hvað er í fréttum,
hvað er að gerast?
Er allt með feldu;
hvað er um að vera?
Við stöndum í röðum
með hatta á höfðum.
Höldum ekkert áfram
í fullkominni stöðnun.
Skjálfti inn að beini -
skerandi hávaði í leyni.
Ávextirnir, einir,
af kvistunum falla
og meðan veröldin g
runlaus sefur.
Refurinn lævís og gráðugur,
bráðirnar telur.
---
Skapráður halur,
er skömmustulegur maður.
- hliðra sér til hliða.
Rofa og rifjast upp
- riðla sér áfram,
með falsaðan miða.
Ég sé ógurleg loftskip
með sín meðfylgjandi læti,
gera vart við sig
og vekja upp hjá mér kæti.
Skjálfandi líkaminn...
skýtur til skakka sá ami.
Krefjandi, gylltu trompetin hljóma
og hefja upp tóna himnanna;
óma í uppljóma sinn
„karamellu-djass“
með blúsuðum rjóma.
Hvað er í fréttum,
hvað er að gerast?
Er allt með feldu;
hvað er um að vera?
Við stöndum í röðum
með hatta á höfðum.
Höldum ekkert áfram
í fullkominni stöðnun.
Skjálfti inn að beini -
skerandi hávaði í leyni.
Ávextirnir, einir,
af kvistunum falla
og meðan veröldin g
runlaus sefur.
Refurinn lævís og gráðugur,
bráðirnar telur.
---
Skapráður halur,
er skömmustulegur maður.
Labels:
Geðveiki,
Heimspeki,
Vangaveltur,
Vitfirring
Í blámanum
Í blámanum blómstrar
braskandi líf borgarinnar.
Berandi birgðir frjálslegrar
útkomu mótstöðu dags og
nætur. Fyrir sér hefur og
fangar frelsi sitt þegar
græðgin fellur á grúfu.
Skyggir nú á og skakkt
lýsir ljósið í sínu leiða húmi.
Allt ennþá háð
sínum tíma og rúmi -
þeim lösnu reglulegheitum.
Naglfari, í norðan niðinum
bíður í bindingum
niðri við höfnina,
við hliðin á sjálfum Tý.
Vandræðanlegur til vitundar skrúða síns,
Að baki lúrir samansett saga hamfara-ferða
um útsævin sjö. Heimatilbúinn leikur gerður
og hafður við bakka þjóðarvitundarinnar heillrar.
braskandi líf borgarinnar.
Berandi birgðir frjálslegrar
útkomu mótstöðu dags og
nætur. Fyrir sér hefur og
fangar frelsi sitt þegar
græðgin fellur á grúfu.
Skyggir nú á og skakkt
lýsir ljósið í sínu leiða húmi.
Allt ennþá háð
sínum tíma og rúmi -
þeim lösnu reglulegheitum.
Naglfari, í norðan niðinum
bíður í bindingum
niðri við höfnina,
við hliðin á sjálfum Tý.
Vandræðanlegur til vitundar skrúða síns,
Að baki lúrir samansett saga hamfara-ferða
um útsævin sjö. Heimatilbúinn leikur gerður
og hafður við bakka þjóðarvitundarinnar heillrar.
Fyrirgefðu það
Týndur ég vafra í tilgangsleysi
og tilveran virðist til ama.
Spældur ég eiri í leiðinda „speisi"
og speki mín ekki hin sama.
Í hörðu ástandi er heilabúið,
heimska fær ferðinni að stýra.
Snaraður fávizku sný'ég í búsið,
snúið er það mjög að útskýra.
Í burtu ég gekk án útskýringa.
Sálinni gaf ég blindur síðan
sístan gaum til tilfinninga,
né gát að veru þinni og líðan.
Fyrirgefðu það.
og tilveran virðist til ama.
Spældur ég eiri í leiðinda „speisi"
og speki mín ekki hin sama.
Í hörðu ástandi er heilabúið,
heimska fær ferðinni að stýra.
Snaraður fávizku sný'ég í búsið,
snúið er það mjög að útskýra.
Í burtu ég gekk án útskýringa.
Sálinni gaf ég blindur síðan
sístan gaum til tilfinninga,
né gát að veru þinni og líðan.
Fyrirgefðu það.
Greining staðreynda
Sögur sagðar - sjálfsagðar.
Úr spaugi sprottnar,
sorglega frá spekinni sokknar
- ljúflega lagðar í laumi.
Leiðir lyga lifna við
úr glaumi lífs
- uppgerðar mynningar -
fengnar úr draumi
dreymdum...
Við a.m.k reyndum
að sætta sjálfin saman,
að sorgum gleymdum.
Þær aldnar voru á engjum
úlfúðar lengi,
þó ekki til eilífðar...
- endurskapaðar
til tilgangs gæfu.
Hin gengna geðveiki
þess gæfulega fengs
sem í huga hamrað
hafði gól, hvað eftir annað,
sór að standa við sitt...
Þá upphafið var til ama
verk endurtekningar
og lógað,
fyrir það sama.
Hugarflug fundið,
fengið var, og
frjálslega ágengið
fyrir hinn sanna guð
fyrirgefninga, og
fræðandi þekkingar
- sem -
sýnir sýnir sjálfsblekkinga
í sínu sanna ljósi, þó
annað á endanum kjósi
sálin særða, sorgmædda...
---
En sjáið hana nú,
trúna - ný-endurfædda
grafna dýpra í vonina;
sýnina á ljósið bjarta -
staðfestuna í
líkamans hjarta
á meðan heilinn aðeins
vellíðun skartar til heimsins.
Hugljómun fengin...
það verður umbreyting
til batnaðar og fegurðar-frama.
Hringsól hjólanna
reynist stundum annað
en maðurinn ætlaði.
Frá endanum
upphafið rann
og mun að öllum
líkindum halda áfram
til enda á ný...
Svo vinnan nú loks hafist getur,
staðfest, skjalfest og færð í letur!
Vinnan að því að gera betur og betur.
Úr spaugi sprottnar,
sorglega frá spekinni sokknar
- ljúflega lagðar í laumi.
Leiðir lyga lifna við
úr glaumi lífs
- uppgerðar mynningar -
fengnar úr draumi
dreymdum...
Við a.m.k reyndum
að sætta sjálfin saman,
að sorgum gleymdum.
Þær aldnar voru á engjum
úlfúðar lengi,
þó ekki til eilífðar...
- endurskapaðar
til tilgangs gæfu.
Hin gengna geðveiki
þess gæfulega fengs
sem í huga hamrað
hafði gól, hvað eftir annað,
sór að standa við sitt...
Þá upphafið var til ama
verk endurtekningar
og lógað,
fyrir það sama.
Hugarflug fundið,
fengið var, og
frjálslega ágengið
fyrir hinn sanna guð
fyrirgefninga, og
fræðandi þekkingar
- sem -
sýnir sýnir sjálfsblekkinga
í sínu sanna ljósi, þó
annað á endanum kjósi
sálin særða, sorgmædda...
---
En sjáið hana nú,
trúna - ný-endurfædda
grafna dýpra í vonina;
sýnina á ljósið bjarta -
staðfestuna í
líkamans hjarta
á meðan heilinn aðeins
vellíðun skartar til heimsins.
Hugljómun fengin...
það verður umbreyting
til batnaðar og fegurðar-frama.
Hringsól hjólanna
reynist stundum annað
en maðurinn ætlaði.
Frá endanum
upphafið rann
og mun að öllum
líkindum halda áfram
til enda á ný...
Svo vinnan nú loks hafist getur,
staðfest, skjalfest og færð í letur!
Vinnan að því að gera betur og betur.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)