Translate

fimmtudagur, 17. október 2013

Skelfing

Ég sé skýin opnast
- hliðra sér til hliða.
Rofa og rifjast upp
- riðla sér áfram,
með falsaðan miða.

Ég sé ógurleg loftskip
með sín meðfylgjandi læti,
gera vart við sig
og vekja upp hjá mér kæti.

Skjálfandi líkaminn...
skýtur til skakka sá ami.

Krefjandi, gylltu trompetin hljóma
og hefja upp tóna himnanna;
óma í uppljóma
sinn
„karamellu-djass“
með blúsuðum rjóma.

Hvað er í fréttum,
hvað er að gerast?
Er allt með feldu;
hvað er um að vera?

Við stöndum í röðum
með hatta á höfðum.
Höldum ekkert áfram
í fullkominni stöðnun.

Skjálfti inn að beini -
skerandi hávaði í leyni.

Ávextirnir, einir,
af kvistunum falla
og meðan veröldin g
runlaus sefur.
Refurinn lævís og gráðugur,
bráðirnar telur.
---
Skapráður halur,
er skömmustulegur maður.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli