Translate

mánudagur, 14. október 2013

Kostir valkvíða

Öllum kostum er ég gefinn
                til'að
áskotnast frægð - frama;
         lemja og lama
         leti sálarinnar.
Finna þefinn af grasinu,
    ekki aðeins skítnum
    sem á það er borinn.

                „Lirfa“
- en púpan neitar að springa -
     því fiðrildið þar innra
     þorir ekki að frelsast.

En náttúran lætur oft illa,
       og vill þá spilla
    geði'og gleði guma;
    breyta góðum vetri
       í slæmt sumar...

---

Stundum gengur vel
þó viljinn sé gefinn
í skilning annan.

Ég tek svartri nóttinni
sem björtum degi.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli