Translate

fimmtudagur, 10. október 2013

Geðveiki



Meðan tíminn dansar tangó uppá grín
þá tómlegt húsið stendur autt.
Meðan ekkja syrgir fallin börnin sín
silfrað tunglið verður rautt.

Vindurinn veinar svo illa að mig sker,
veltur á sjónum agnar dugga.
Gleymandi að gá vel að sjálfum sér,
sefur Gamli við opinn glugga.

Himininn brennur við hafsins enda,
og heltekur mannkyn sú sín.
Löngu kominn tími á'að lenda,
en leyfi mér að gera'af því grín.

Nafar milli Hana og Hænu,
held ég uppá Gónhólinn.
Loksins ég reis, þó með litla rænu
og reyni að lifa fram á jólin.

Dagur niður dettur og nóttin rís,
og dimmt er mjög yfir hér nyrðra.
Hér bræður sárt berjast, á landi íss;
blákallt þeir hvorn annan myrða. 

Engin ummæli:

Skrifa ummæli