Er ferðast þú yfir fjöllin háu
fyrir handan þar
sem gulli rignir
sem gulli rignir
niður við sýslumörkin,
minnstu mín helst
meðan þú dvelur þar
við stúlkuna sem eitt sinn
ég þráði mest.
Er ferðast þú yfir fjöllin bláu
fyrir handan þar
sem demantar drjúpa
sem demantar drjúpa
af himni við sýslumörkin.
Gættu að einu hvað helst
meðan þú dvelur þa,r
að verðleika sinna kosti
hún sjái og njóti.
Er ferðast þú yfir háu fjöllin bláu
fyrir handan þar
sem gnægtir hlaupa
sem gnægtir hlaupa
niður hlíðar sýslumarkanna.
Máttu til hennar skila
kveðju kærri frá mér -
að fögur og heilbrigð
hún sátt sína fái.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli