Í upphafi til urðu himinn og jörð
og hafið fylgdi á eftir fljótt.
Til varð úr takti hin fullkomna gjörð
tímans, svo skiptust dagur og nótt
í aðskilin hugtök, en stóðu þó vörð,
órjúfanleg - föst í sínu eigin þreki
til eilífðar. Áætlunin var til lögð
áður en erindin urðu og allt enda tók.
Með þrömmum, þungum skrefum
þvingað var fram hið fyrsta líf.
Alin til veru hver einasta tegund
og tilgang gefið um ókomna tíð
að uppfylla. Hin einasta, fyrsta
afleiðing tilurðar, voru hljóðbylgjur
í taktfylgjandi sveiflum; titrandi,
temjandi til tilvistar innsta eðli efnisins.
-
Fæðandi frelsinu framfarir,
tónlistin telst tákn tilgangsins.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli