Rösklega ég ráfaði
reglu og ráðum reyrður
um hinar ríkulegu rökræður
réttsýnna ragna og gerði mér
gagn og gaman af því
að reglulega móta til framfærslu
festu þess glaums sem
gefinn er hinni lúmsku áætlun.
Skuldlaust, að lokum.
Sú gefjun mér var falin í byrjun;
brautryðjun til bata þekkingar
brúkaðrar, sem ósjálfrátt bætir
til batnaðar hegðun mannsskepnunar.
Skuldlaust, að lokum.
Í leiðslu ég leiddur er fram í ljós
kenninga - kennslustund innri þekkingar,
viðurkenning vitundar allt til endingar.
Svo, samvizkulega sinna ég má
því takmarki að mjúkri lendingu ná.
Friðinn í hjartanu úr Helju heimta
og fagna frelsinu nýfundna.
Skuldlaust, að lokum.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli