Translate

föstudagur, 18. október 2013

Hugsað við dómkirkju Reykjavíkur

„Það sem þulið er upp,
er þaggað niður“.
- og í þeim orðum sló klukkan hálf.

„Hið göfuga gubb;
hinn gefni kliður“.
- ginningin kemur sér aftur í mál.

„Nautn er að njóta
neyslunnar - í neyð“.
- nútímans sjálfsagða blekking og tál.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli