Translate

föstudagur, 18. október 2013

Misskilningur ásta

Skakt ég skynjaði
skap mitt og þel,
er brotinn ég byrjaði
barnsmóður með.

     Allan mig engdi
     ef eirði ei hjá.

Gaf ég gímaldi
galdranna seið,
til ásta og óskandi
eftir ég beið.

     Staðfestu strengdi
     í steypunnar stál.

En misbrestir mynduðust
í mæðandi martraðir
sem sálirnar sundruðu
og söktu djúpt í kafið.

     Ráðþrota reyndi ég
     raunum flúið frá.

Þá leit ég yfir lífið
og lagði á það mat;
því sjórnlausa stríði
stýrt betur ég gat.

     Svo allsgáður ég gengdi
     og grið reyndi að fá.

En góðmennskan galt mér
geðveiki til baka!
Því vísast þannig fer
þegar vá-raunir skaka.

     Lífinu eftirlengdi,
     láku af vöngum tár.

En nú stend ég sterkur,
og stefni á bata!
Horfinn er'nú sár hausverkur...
Nú „heim“ ég aftur rata!

Þá tilfinningar loks ég tengdi
og tamdi burt mín sálarsár.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli