Translate

fimmtudagur, 17. október 2013

Raus...

Þér standið höltum fótum
á mörkum tveggja heima,
á þeirri fínu brún
- eða línu -
sem hvílir milli þess
alvarlega raunveruleika
og hinnar barnalegu
ímyndunar tilverunnar.

Þér styðjist við staf
yðar sveltu hæfileika,
sem fyrir hungraðri
áfergju stoltsins
létu yður reika.
Bugaðir af sárum
hins sára sannleika
sem sýndi yður ítarlega
hina sönnu mynd sjálfsins.
Bældur biturleikinn
í brjóstinu sýður
- svíður -
og mun gjósa að lokum
sem og líður - ef óáreittur.

„Verið viðbúin“
gæti ég sagt en litla stoð
myndi það veita til viðsnúnings
ákvarðana örlaganna.
„Fangið ykkar föggur
og flýjið“
                 -Nei...
tilgangslaust og ó- tilrauna vert.

Þolraunin virðist yður of þung
- ofviða.
Vonlaust verður hjálpina
að veita þeim sem upprisið
hafa gegn sínu sanna eðli,
hinu ómótaða innra
með hinu mótaða ytra,
sem í annarlegum tilgangi
matað er af mönnum til manna
- falsað.

Þér reynið sem mest megið
að halda jafnvægi,
en vogarafl samvizkunnar
verður samvizkusamlega
að láta eftir þyngdarlögmáli
gjörðanna.

Aflvana þér eruð, rjúkandi af reiði
og brennandi í brjósti. Sárt svíður
hið særða stolt og það brjálæði
veldur ama þar til líkaminn lamast.

Þér liggið í djúpu dái blekkinga,
trúandi á þá spekinga sem yður
böðuðu upp úr laugum lygarinnar.
En kvíðið eigi kæru kunningjar,
kvíðið eigi! Við öll verðum dæmd
á hinum hinsta degi en skoðanir
skipta þá engu. Það er sá fengur
sem hjartað hefur fram á að bjóða,
óháður áhrifum hins vakandi huga.
Allt til fórnar fyrir eilífa alsælu.

---

Ég vildi aðeins láta yður vita.
Svo, ég óska yður vægðar,
ró og friðar í ólgusjó hinnar
óröklegu hegðunar.

Ég skal senda yður póstkort!
           - Adieux!

Engin ummæli:

Skrifa ummæli