hamingju reyna'að
upphefja í hjarta -
í Hjarta-garðsins
múraða hjarta...
Þar með ég reyni
að ráða þá gátu
er ríkjum ræður í
ringluðum huga
mínum rauðum:
„Hvar er samhugurinn;
einingin, nándin - sálin?“
---
Aðeins veikar
verur nú saman
koma neyddar -
óskandi betrunar
brostinna vona,
byggðra á vímu
gærdagsins -
og fráhvörfum
dagsins í dag.
---
„Hvað varð um
sáttina sem
vitund ásta gróf
í þennan reit?“
...hún flutti
vízt uppí Breiðholt
einsog flestir
sem á miðbæinn reyna!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli