Skemmtun
og
skaði
- skrifuð niður -
sátt,
sátu
saman
á blaði;
skökk...
Þau gefin voru
saman í orðinu
svala.
Skreytt skrauti
skala skrattans.
---
Vísdómur
túlkunnar,
og skynjunar,
mun veitast þeim
sem eyru sín
rösklega fram ljá
og með
augunum lokuðum
- tilbúnum -
munu sjá
að lokum!
Ef vel er að gáð.
---
Hjörtu mannskepnanna
fyllt speki
og visku gefin.
Bíðandi endanlegrar
svörunnar:
„Einlægrar andagiftar“.
Ótæmandi
framfylgni
tilgangs og tilveru...
Skarplega sköpuð
skaðsemi
skepnunnar sjálfrar
til skynvillu-
skemmtunnar.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli