Á dansleik
Lengi hafði hann þráð hana heitt -
helming rúman ævi sinnar.
Þessi töfrandi augu og brosið breitt
og þessar sætu mjúku kinnar.
Þau hittust á dansleik og stigu dans,
dönsuðu um gólfið lengi saman.
Í sælunnar vímu féll hann í trans,
oh, hvað honum fannst þetta gaman.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli