Translate

Sýnir færslur með efnisorðinu Gömlu ljóðin (eldri en ca.10 ára). Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Gömlu ljóðin (eldri en ca.10 ára). Sýna allar færslur

föstudagur, 7. nóvember 2014

Afleiðingar ákvarðanna sem speglast í lélegri ljósmynd af dauðanum

sólin er appelsína 
sem skín á glötunina 
svarthvítt myndbrot 
af dauðanum
með áróður 
á móti lífinu


kómískur hryllingur 
með dramatísku ívafi
svo er öllum sagt að þegja 
og fyrir lygum hneigja
í dáleislu hrakfalla
líðandi stunda 
hryllileg dramatík 
með þó kómísku ívafi

Unga konan Ása

Núna yrki ég um hana Ásu,
eina unga konu fríða.
Vildi ég hennar væta pjásu
vel, og svo henni ríða.

Heimboð

Ef veröld þín í vol er öll
og enginn veitir þér hlýju.
Ef hvæsa á þig kvíða köll
og hvergi þú sleppur við klígju.
Þá heyrðu í mér undir eins
ef undan fer að halla.
Ég flyt þig til undraheims
sem ofar er allra fjalla.

Litla götuhóran

Þú ert falleg,
með heila í lagi

og svo ertu lagleg.
Þú ert skrítin,
stundum getur

veröldin verið ýtin.
Þú ert dóni,
í dag ertu róni

en í gær varstu fáguð.

Spáið í framtíð vorar bjartsýnu þjóðar!

Þú ert lamin,
og í kjölfar þess

er sálin þín kramin.
Þú ert kerling,
krumpuð og ljót

- ein fitufelling!
Þú ert útgrátin,
aldrei fullnægð

og farinn er dátinn.

Spáið í framtíð vorar bjartsýnu þjóðar!

Þú ert fíkill,
fyrir öðrum ertu

götunnar sýkill.
Þú ert hóra,
froðufellandi þú

gleður bankastjóra.
Þú ert staur,
en fyrir stjórana

færð þinn aur.

Spáð var í framtíð vorar bjartsýnu þjóðar, 

svo var því hætt... 

Reiði

Aleinn ég storma út í myrkrið sár
því sviftur var ég aleigu og sál.
Kuldinn nístir, ég er orðinn blár
en hlýnar strax við reiðinnar bál.




Helvítis!

Hann gerir sér svo glatt að hamast á litlum sálum.
Kemur inn og skemmir hratt; 
allir eru æstir, á nálum.

Þó hann taki allt sem mér dýrmætt mun vera
þá þorir maður ekki eitt stakt orð að segja.
Því ef ég myndi voga mér það að gera,
þá væri ég hreinlega að biðja um að deyja.

Samningur rofinn

Ég heyrði í dag að þú værir komin heim,
þú sem ætlaðir ekki að vera sein,
að hringja í mig og láta í þér heyra.

Og það er svo sárt að vita það
að þú gangir ekki beint í hlað,
inn til mín og heilsir mér með kossi.

Við sömdum um það í fyrri tíð,
að við mundum vera við það þíð
að skrifast á og hringja inn á milli.

En í staðinn er ekki bleki eitt,
og símreikningurinn er ekki neitt,
og ég skil bara ekki hvað hefur komið fyrir.

En viltu kæra vera svo væn,
að láta mína heitustu bæn
rætast rétt og verða að veruleika?

Því að ég hef reynt í mörg, mörg ár,
að verða þinn eigin rauðbrúni klár,
sem þú riðið getur um garða og háar hæðir.


Þótt útlitið sé ekki fagurt,
þá getur innlitið verið magurt,
af friði, ljóma, fínleika og sóma.

Og þú veist að ég geng á eftir þér
eins langt og sjálfur heimurinn er,
en þú vilt bara ekki taka eftir.

Bíltúr

Veröldin er þjóðvegur
og við erum bílarnir.

Hver er þinn farþegi?
Má ég slást í hópinn?
Ég skal lofa að vera góður
á meðan þú keyrir.

Hvert er ferðinni heitið?
Eitthvað útá land?
Það er komið myrkur,
við erum langt frá öllum ljósastaurum.
Ég lít útum gluggan,
hvað heldurðu að ég sjái?
Heldurðu að það sé ekki
allt lífið að þjóta framhjá.

Hvers vegna kom ég með?
Hvers vegna var ég ekki eftir?
Nú þegar ferðinni er lokið
erum við komin á leiðarenda -
allt er búið...

Afhverju var ég ekki bara eftir heima í kvöld? 

Drumbufall

Þá mun
ég þrá
þetta:

drumban

muni
detta. 

sunnudagur, 23. mars 2014

Ode to all natives


Growing food right in their backyard
and in the front they mined for gold.

Living peacefully with their neighbours, 

the atmosphere was far from cold.

Building large futuristic buildings,
making epic history - left untold.
Eyes of the society was beautiful
but now their culture has been sold.
---
Sailing across the whole Atlantic-sea,
packed with diseases and guns to blow.
With only one thing on their narrow minds:
"Find some land and growth, you know".

Invading those beautiful nations,
taking everything they had to give.
Starting cutting down the people
where not a sole was left to live.
---
They're not gone but still forgotten;
still their land the white man craves.
Starting wars within every nation
for the survivors 'to become slaves.

When will history stop repeating itself?
When will those genocides be stopped?
They've rewritten our correct history,
the truth in pieces has been chopped.

mánudagur, 30. desember 2013

Fuglinn



Af hverju dó hann í lífsins blóma?
Sá hann aldrei hamingjunnar ljóma?
Einn sá tignarlegasti er hafði sést
en endaði flugið í grút fyrir rest.

föstudagur, 18. október 2013

The creation of time

Listen carefully 
and the truth 
you shall see...

What we know as "time"

is an absurd invention.
For time as we know it
isn't part of this world,

it was given to existence
by the offsprings of evil:
The ego of the mind
and it's sister - pride.

So please see through their lies!
That is, the importance of time.

Just ignore it - relax 
and just keep on snoozing.  

Queen of the heavens

Around the high and endless skies
hyperbolically she flies
- this queen of the heavens.
Amazingly, she over dominates
time and space; humanities fate  
- this queen of the heavens.

Without a blink she does create
tremendous feelings; a higher state
- this queen of the heavens.

Her hair is brighter than the sun.
Her eyes of diamonds are worth millions!
- this queen of the heavens.
They lead astray, yet make my day;
all my troubles casts away
- this queen of the heavens.

Her closeness is of true divine;
my consciousness brings out of time
- this queen of the heavens.

---
 
Now, at the end, I've lost my mind;
through the deepest oceans I tried to find
- that queen of the heavens.

föstudagur, 11. október 2013

Tilraun til sátta niðurlægingar

Úr mörgu er ég gerður maður
og met allt jafnt til griða.
Lofa hvorki last né þvaður,
læt hið sanna áfram miða.

Lyganöðrur og lágar sálir, 

last ég ber til ykkar.
Ykkur ég bölva og óska báli
er biturleikinn þykknar.

Reiður mjög, rjúkandi af bræði,

rökkur hylur huga minn.
Frá hatrinu fæ ég ekkert næði 
fyrr en slokknar eldurinn.

Hvernig né hvaðan, enginn veit

hvert svo sem það stefnir.
En rosaleg hér var sett í reit

raun, til að sanna efnið.


The show of lies



If 
it wasn't me
and
it wasn't you,
who else could it be
except for us two?


Who 

is there to blame,
who 

is there to bless? 
Who 
is playing this game?
- I couldn't care less.

fimmtudagur, 10. október 2013

Redeeming ones being

Clarity of mind,
in concern to eternity
sets the line of what is
and what will be.
You see, it is the believe
you manifest
in your chest
which makes and creates
the role
of your sole -
ultimately guides you
to your higher goal...

- Simple as that
it is to react --- to
glory and graciousness
given from righteousness.
Each life is imported to this world
to seek true wealth of its purpose;
moving towards that "something" -
going backwards - yet growing,
yet failing its alternative goal...
---
 
Now, here's my proposal:
      If I commit every bit of myself into
nurture to dedication for the future;
giving all past issues closure...
Would you take my dare, and likewise be there?
Could you honestly care..?

Gamla konan á Hlemmi




Kuldaleg situr ein kona á bekk,
kramin á sál, og á hjarta.
Reynir mest megnis að vera geðþekk,
meðan ríkara fólk sáran kvartar.

Talar um allt milli himins og helju,
hvort við mig eða þig eða aðra.
Og'þó rífir þú kjaft og kallir svo belju,
kerlingin samt ekki hættir að blaðra.

Veit hún um hluti sem fáir af vita;
hefur margan frætt um annað og eitt.
Sagt agnarsögur og veitt öðrum hita,
en aldrei slíkt fengið til baka greitt.

Enginn þykjast vill þekkja'hana,
þegar heilsar hún fólki með „hæ“.
En'ef söknuð fólk finnur til sagnanna,
þá skíst það beint niður'í bæ...

Dvelur hún þarna alla daga,
mér dásamlegt finnst hennar gagn.
Og sjaldan verður þreytt sú saga,
er segist hún taka næsta vagn.

Vangaveltur úr nútíma samfélagi



„Spurning hvort maður aðeins 
þjálfi sinn innri mann, 
kannski á kortersfresti?
Það er allavega hægt að reyna“.

- Svo gekkk hann út.
Ég horfi á eftir honum, 

með svívirtan spilastokk í höndunum.

---
Klökkir eru karlarnir, herfa;

þú kynnist þessu brátt unga mey. 
Inní myrkrið þeir endlaust hverfa 
og enginn af þeim snýr aftur heim.
---


„Spurning hvort þú grafir þér ekki bara dýpri holu í hvert skifti“?
Skíst framhjá Jón á hjólinu...
Hann tekur ekki eftir því.
Svo ég dreg djúft andan, teygi mig aftur og hlæ.

---
Lætur á sér lítið bera,
lifir í eigin heimi.
Það er ekkert hægt að gera, 

ef lítilmennskan á sveimi.
---


„Spurning hvort þú getir ekki lánað mér samviskuna þína á morgun“?
Ég lofa að reyna mitt besta...
Og hann kveður með látum.
Tek af mér húfuna og allt í einu hugsa: 

„Ég væri alveg til í að lifa.“

Til vinkonu



Hvað þarf ég að gera,
til að fá þig til að skilja,
það, hver þú ert
og hvað þú verður.

Tilgangslaust virðist að reyna
því þú hlustar ekki á,
þó innst inni
þú vitir það samt.

En „vinur“ þinn besti,
með sína ljótu lesti,
ræður yfir þér nú.
Hann dregur þig frá mér,
svo frekur, svo reiður.

Þú skilur bara ekki
hvað mér þykir vænt um þig. 

Draumur á 13. föstudegi




Mig dreymdi að mig væri að dreyma,
draum sem ég skildi ekki neitt.
En honum vil ég helst ekki gleyma,
og heldur ekki fá honum breytt. 

Ljóð um lífsleið

Þú undrandi komst inn í þennan heim,
með örlitlu voli, sem aldrei kom meir.
Þú brostir þá fallega, blíðlega'og skært;
þú varst uppfull af gleði og hjarta þitt friðað og tært. 

Senn varðst þú fimm ára, ljóshærð og sæt.
Allt þótti þér mögulegt, þótt þú færir þér hægt.
Allt lék þá í lyndi og aldrei seig sól.
Þú dansaðir á rósum, klædd þínum einstaka kjól.

En svo byrjaði stríðið þitt, ár eftir ár
sál þín marg brotin, með mörg opin sár.
Þú leitaðir hlýju á vitlausum stað.
Það grunaði engan að það væri nokkuð þér að.

Svo líf þitt þú helgaðir þinni nýjustu ást
og þó hún sviki þig stöðugt, þú lést ekkert sjást.
Ferðin varð löng og hún lengdist um mun.
Leiðin var ljótari en þú þorðir að gera þér grun.

Þó sögur væru skrifaðar í bækur og rit,
þá samt enginn vissi um'það erfiðis strit
sem, særð, þú þoldir í þín fáeinu ár.
Það var öllum sama, það þurkaði engin þín tár.