Veröldin er þjóðvegur og við erum bílarnir. Hver er þinn farþegi? Má ég slást í hópinn? Ég skal lofa að vera góður á meðan þú keyrir. Hvert er ferðinni heitið? Eitthvað útá land? Það er komið myrkur, við erum langt frá öllum ljósastaurum. Ég lít útum gluggan, hvað heldurðu að ég sjái? Heldurðu að það sé ekki allt lífið að þjóta framhjá. Hvers vegna kom ég með? Hvers vegna var ég ekki eftir? Nú þegar ferðinni er lokið erum við komin á leiðarenda - allt er búið... Afhverju var ég ekki bara eftir heima í kvöld? |
Samansafn af öllu því efni sem ég hef talið vert að skilja eftir ritað á blaði eða tölvutæki.
Translate
föstudagur, 7. nóvember 2014
Bíltúr
Labels:
Gömlu ljóðin (eldri en ca.10 ára),
Heimspeki,
Lærdómur,
Saga
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli