Translate

föstudagur, 7. nóvember 2014

Brotthvarfið

Í fögrum dal í fjarlægu landi,
fann ég eitt svo magnað.
Fyrir utan tímann, í sælu svífandi,
sólríkis hásumars dag.

Dansandi
dreymandi
án kvaða,
í algleimi.
           Laust mig ljúfasta tilfinning.

Á augnabliki vitund mín breyttist
í óendanlega tilveru.
Hugurinn óður, braust um og þeyttist
og augu mín stjórnlaust hringsnérust.

Líðandi
leikandi
í frelsi,
án mótstreymis.
            Fékkst mér mín fegursta minning.

Að snúa til baka þótti mér verst,
að verða aftur að engum.
Standa aftur einn í stjórnlausri lest
sem stanslaust í hringi gengur.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli