Translate

föstudagur, 7. nóvember 2014

Sannleikurinn

Margsinnis hef ég misnotað
margan drykkinn góðan.
Og ekki get ég fullyrt að
einhver hafi gert mig fróðan.


En hins vegar hef ég leikið mér
að “húlla' upp” nokkrum skvísum.
Svo skrítið hvernig ég heiminn sé
eftir svolítið ball með þeim dísum.

-
Með áfengi um hönd, á fyllerí held.
Hef alltof oft staðið í þannig þeysi.
En ef ég rúlla' upp dömu og ber að 'henni eld
ég öll vandamál heimsins leysi.

-
Greinið á milli og greinið í sundur;
og gangið nú frá þessu straffi.
Vil ég þá minna' á að þetta munaðar undur
er minna ávanabindandi en kaffi.


Svo berið út orðið og berið það hratt,
berið það alla leið til Mekka.
Þó þeir segi annað þá er þetta satt:
Smókurinn er skárri' en að drekka!

Engin ummæli:

Skrifa ummæli