Translate

föstudagur, 7. nóvember 2014

Dæmigerð morgunstund

Áfram, áfram!
- en ég dett áður 
en ég kemst af stað.
Aleinn, drukkna ég í deginum.

Ég finn hvernig vit mín fyllast 
af rjúkandi raunveruleikanum,
sem á endanum skríður niður í mig
og fyllir hverja einustu lungnablöðru.

Svo ekkert.

- Kæfður úr einu í annað,
svo allt aftur á morgun.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli