Translate

föstudagur, 7. nóvember 2014

Bárujárn (ég er á AIGO)

Éljagangur, rok og skíta kuldi,
geispandi vindur og stökustaðsól.
Efli sjálfsdáð með hugsunarleysi;
legg mig til hvílu í bjarnarból.


Sköpunargleði sem of seint fæðist,
kemur út í þessum ónýtu orðum.
Allan ég gef mig til ætlunarverka
þó ekki teljist til áfanga merkra.
Illt er að vera úr öllum skorðum.
Gæfulegt væri ef endurnýjun næði.


Á mörkum þess að vera heill á geði
stari ég blindur með tóma hugsun.
Tilfinning sem ég hef aldrei fundið -
af' hverju er ég ekki' í neinum buxum?

Engin ummæli:

Skrifa ummæli