Dagur sem dofnar í hringhlaupi tímans
er dagur sem gleymist í mínútusjó.
Og augnablik grafin í ómerktar grafir,
geymd en týnd einsog saumnál í mó.
Fljótandi áfram í elfi hringrásar
uppsprettu streitu og geðveiklunar.
Vindar samtímans strítt á mig blása
og sárt þeir draga til bæklunar.
Á biðinni er ég að bilast
og brjálæði er ekki að leyna.
Ég er bara að reyna'ð finna frið
mín fagra - mín allra eina.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli