Ég er leiður, svo leiður...
Það lagast ekkert - ég veit það.
Ég er bitur, svo bitur
og batna hægt, ef eitthvað.
Ég er óður, svo óður...
Ég ann orðið engum lengur.
Ég er reiður, svo reiður,
ræðst á allt sem gengur.
Ég er móður, svo móður...
Mæðan mig gjörvallan skekur.
Ég er hryggur svo, hryggur,
og hryggðin mig að lokum drepur.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli