Þegar reiður ég er
þá reyk fæ ég mér
til að draga úr illskunnar báli.
Því staðreyndin er sú,
og ég sé það skýrt nú
að skólanám skiptir ei máli.
Ef svangur ég er
þá smók fæ ég mér
til að samstillast þeim fagra tóni
sem ég heyri nú lágt,
en heyri brátt hátt,
með hjálp frá tilbúnu lóni.
Því segi ég glatt,
já, ég segi það satt,
sé heimur þinn allur í bölvuðu tjóni,
þá kíktu fljótt inn
kæra mín, kæri minn
og kveiktu upp'í góðri hjá Jóni.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli