Translate

föstudagur, 7. nóvember 2014

Helvíti hart

Vaxandi vitundin opnar mér
veröld, svo fjarri öllu.
Með gjöfum Freyju hún færir mér
frelsi á hugarins stöllum.

En bjálfarnir vanhugsað banna
betrun þá er felst í því
að vitundina varlega kanna -
að vefja' upp arfa og kveikja svo í.

Þess vegna ég þjakaður er,
þurfa þau bönn að líða
sem hefta hamingjunnar veg,
sem heilagleikann kalt níða.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli