Translate

föstudagur, 7. nóvember 2014

Í sturtu

Ég stíg undir fallandi vatnið
og finn hvernig droparnir skella 

á líkama mínum og seytla
eftir hverri húðfrumu.

Ég finn hvernig vatnið, 
uppistaða alls lífs,
skolar mig og þrífur;
hvernig áhyggjur og

gamlar syndir hverfa.

Harða skelin mýkist upp;
ég stíg undan nýr maður.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli