Þú, þú ráðherra lands,
er þín samviska hrein?
Og fílabeinsturn þinn
frekar mannabein
úr hinum vinnandi manni
sem trúði þig á?
Þú sem mat okkur meinar
meðan tyggjum við strá.
Þú ert sekur að sanni,
samviskulaus.
Svíkur sárt fólkið
sem að þig kaus.
Með þína vopnuðu verði
þú vanvirðir oss.
Rausar þinn rógburð
um rafbyssukost.
Viltu útskýra eitt
um efnahaginn,
eru varnarmál heldri
en öryrkinn?
Hvað með blíðu börnin
blæðandi sár?
Í hverju felst vörnin
um ókomin ár?
Mig dreymir þig deyja,
og að þú deyir í bráð.
Að þú tapir þínu trausti,
þá er takmarkinu náð.
Verðir grafinn að vetri
í volgum og vellandi grút.
Og þú súpir seið þinna gjörða
af svo sjóðheitum stút.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli