Ósköp væri ég mikið til
að áskotnast þeim rétti,
sameinast fyrir Guði vil.
Já, sannlega yrði það léttir.
Hef ég ei í hug að dreyma
um hvaða konu sem er.
Heldur vil ég aðeins eina
er alla tíma í hjarta ber.
Mig dreymir þessa eina drós,
svo dásamlega að líta.
Þessa roðafullu blómarós,
rós sem ei má slíta.
Fegurri augu ei fást séð
fjöll öll yfirgengin.
Af börmum bestan er hún með
sem bæra gleðistreng minn.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli