Fór út.
Kom aftur inn.
Það var svo mikill vindur.
Fór inn.
Kom aftur út.
Það var svo mikið vesen.
Fór niður.
Kom aftur upp.
Það var svo mikill vandi.
Fór upp.
Kom aftur niður.
Það var svo mikil villa.
Fór fram.
Kom aftur - aftar.
Það var svo mikils vænst.
Fór aftur.
Kom aftur fram.
Það var svo margt til vinnings.