Translate

Sýnir færslur með efnisorðinu Vonleysi. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Vonleysi. Sýna allar færslur

föstudagur, 7. nóvember 2014

Depurð

Ég er leiður, svo leiður...
Það lagast ekkert - ég veit það.
Ég er bitur, svo bitur
og batna hægt, ef eitthvað.


Ég er óður, svo óður...
Ég ann orðið engum lengur.
Ég er reiður, svo reiður,
ræðst á allt sem gengur.


Ég er móður, svo móður...
Mæðan mig gjörvallan skekur.
Ég er hryggur svo, hryggur,
og hryggðin mig að lokum drepur.

Kveðið í strandi

Einn um dauða og dofna jörð
dansa ég í leyni.
Langt er heim í Húnafjörð
helst mig þangað dreymir.


Einn ég húmi í harðræði
við hvatir ástarinnar.
Endurómar fáfræði
ímyndunar minnar.


Nú er svart allt sem ég sé,
skuggi yfir liggur.
Á enga von og ekkert fé,
svo einmana og hryggur.

Misheppnaður flótti

Hugsa um daga og drauma sem á mig snéru,
þá drambið var fallinu næst.
Þröngar minningar um hug minn réru
meðan ósk mín gat ekki ræst.

Draugar fortíðar á mig nú falla
fyrir minn síðasta túr.
Feigðardrykkurinn á mig fast kallar,
fjötrum hans kemst 'ekki úr.

Hleð skot í hólkinn og geri mig kláran,
heiftina' að hemja ei næ.
Gleypi endann á rörinu' og græt mig sáran,
gikkinn dreg aftur og hlæ.

(bæng!)

Ranka nú við mér og verkjar í kjálkann,
velti mér við, reyni' að grípa í bjálkann.
Ég lít í spegilinn en veit ekki hver þar er.
Ég sé eitthvað andlit – en ekki andlitið af mér.

Þriðjudagurinn 5. okt. 2004 – Kárahnjúkar

Það er blind og byljandi hríð,
bræði andlitið undir klúti.
Undir skafl ég skjálfandi skríð,
svartsýnn vonað ég verði'ekki úti.

Löngun

Hví fæ ég ekki að auðnuleysast
eins og skáldin gerðu hér forðum?
Í ölvímu um landið mitt geysast
og upphafinn seinna í orðum?

Þokan þekur Breiðholtið

Þokan þekur Breiðholtið.

Bókstafleg og myndhverft.
Sú bókstaflega er grá,
sú myndhverfða er blá.

Þokan þekur breiðholtið.

Á auðri götu

Ég geng um auða götu, einn,
í gaddfrosti, kalinn og sár.
Er illa til fara, þjáður, óhreinn
og úr auganu brýst frosið tár.

Nóttinni dimman yfir dvelur,
drungaleg að venju og tóm.
Vanhugsað ætíð maðurinn velur
sitt versta par, af öllum skóm!

Ég gat svo sem sagt mér það
að söngurinn mundi þagna.
Farið er burt mitt fagra lag,
sem í fortíðarþrá ég sakna.

sunnudagur, 12. október 2014

Þreyttur í sálinni

Að ala manninn ku erfitt mjög
einsamall í mergðinni.
Að grafa sína eigin gröf
grátlega ræður ferðinni.

---
Úr djúpinu rís depurðin,

dagar saman falla.
Yfirgnæfandi erfiði
elta mig ævina alla...
---

Einsog málaður strigi, eptir Van Gogh -
svo óð mér heimurinn sýnist.
Súrealisminn er helst til of "of",
því allt sem ég finn aptur týnist.


---
Úr djúpinu rís depurðin,

dagar saman falla.
Yfirgnæfandi erfiði
elta mig ævina alla...
---


Sjáöldur mínar "shrinka",
sjónin með því minnkar.
Blóðið í æðunum hitnar og þykknar...
Já þannig, fólk, er þessi þynnka.


---
Úr djúpinu rís depurðin,

dagar saman falla.
Yfirgnæfandi erfiði
elta mig ævina alla...
---


Böl og böl, og enn meiri böl.
Bjáni er ég að drekka öl!
Eymd og eymd og eilíf vítiskvöl -
en allt er þetta mín eigin völ.


---
Úr djúpinu rís depurðin,

dagar saman falla.

Yfirgnæfandi erfiði
elta mig ævina alla...
---

þriðjudagur, 6. maí 2014

Ég er öskrandi alkóhólisti

Ég er öskrandi alkóhólisti; 
ölvuð karl-ugla á kvisti.
Neikvæður níhílisti.
Allt ég átti en frá mér missti 
í ölæði, og ekki sá fyrsti
sem ævinni eyðir í borg 
alinni 'á eymd og djúpri sorg.
Glataður gisti ég kuldaleg torg
því gleymd er barnatrúin.
Gamall; leiður - geðheilsan fúin.
Lífsins löngun fæddist lúin
og elja sálar öfugsnúin.
Auralaus ég; brotinn hnúi -
og illa telst ég búinn
til fararinnar löngu,
minnar einmannalegu göngu.
Reiður yfir raunum ströngum;
ráðviltur á stræti þröngu.
Yfirgefinn, einn í mínum öngum.
Magnast upp mæðandi

máttleysið. Kæfandi
leggst yfir leiði mitt mara.
Ljót, hún neitar að fara.
Hann svíður; er særandi,
sannleikurinn - 'og'
erfiður. Engin von,
ást né nokkur friður.
Því er ver og miður.
Dvergar dansa framhjá.

Dáleiddur horfi ég á
þá
mögnuðu sjón að sjá;
sjálfan mig, aftanfrá
að líta. 
Hugarins leyndarmál.
"Hið best geymda".

- Staðfesting staðreynda.

þriðjudagur, 3. desember 2013

Uppvakning

Einhversstaðar 
beið svartur fugl,
svo hann skellti 
lokinu á og henti 
frá sér bútnum.
(Kakan var mygluð undir)

Ég geng sporléttur
meðfram girðingu.
Það er haldið
í hönd mína.

Allt í kring grænir
betrekktir veggir.

(Kona situr við rúmstokk drengsins, og dottar)

Ég horfi,
utan við mig,
á svartan sjó.
-Maðurinn er kolvitlaus!

"Hér er alltaf sól"
- svo grær yfir þetta mosi.




fimmtudagur, 17. október 2013

Fyrirgefðu það

Týndur ég vafra í tilgangsleysi
og tilveran virðist til ama.
Spældur ég eiri í leiðinda „speisi"
og speki mín ekki hin sama.

Í hörðu ástandi er heilabúið,
heimska fær ferðinni að stýra.
Snaraður fávizku sný'ég í búsið,
snúið er það mjög að útskýra.

Í burtu ég gekk án útskýringa.
Sálinni gaf ég blindur síðan
sístan gaum til tilfinninga,
né gát að veru þinni og líðan.

Fyrirgefðu það.

Contemplation

Lonely life, what was
is now all gone.
I used to have a dream,
now I don't have one.
Fight or flight -
all is said and done.

Freedom dies when
every choice is won.
- Brings up homegrown hate.

Peaceful nights were few,
still we had our own.
We made some friends,
now they are all gone.

Another night where
everything is wrong.
I've lost my track
so now I can't go on.

Again rise memories
about my life.
- But they come to late.


fimmtudagur, 10. október 2013

Til vinkonu



Hvað þarf ég að gera,
til að fá þig til að skilja,
það, hver þú ert
og hvað þú verður.

Tilgangslaust virðist að reyna
því þú hlustar ekki á,
þó innst inni
þú vitir það samt.

En „vinur“ þinn besti,
með sína ljótu lesti,
ræður yfir þér nú.
Hann dregur þig frá mér,
svo frekur, svo reiður.

Þú skilur bara ekki
hvað mér þykir vænt um þig. 

Samband rofið

Ég heyrði'að þú værir komin heim,
þú sem ætlaðir ekki að vera sein
að hringja í mig og láta heyra í þér.

Við sömdum um það í fyrri tíð
að við skyldum vera við það þíð
að skrifast á, og hringja inn á milli.

En í staðinn er ekki bleki eitt;
símareikningurinn er ekki neitt
og ég skil ekki hvað hefur komið fyrir.
Og það er svo sárt að vita það
að þú gangir ekki beint í hlað -
til mín og heilsir með ljúfum kossi.

Þú veist að ég gengi á eftir þér
eins langt og sjálfur heimurinn er -
en því miður, þú vilt ekki taka eftir.

miðvikudagur, 9. október 2013

Málið

Ég vildi að ég gæti hugsað
áður'en um verður seinan.
Því við það að vona, ég hef ekki slugsað;
því er ég ekkert að leyna.

Þungt hefur mér þótt hugsað skýrt
en þó haft á því gætur,
að hugsa samt alltaf um eitthvað hýrt,
ef lúri ég einn um nætur.

Grun ég hef um'að þér hitni,
höfðinu í, við að skilja mitt mál -
'Því þau orð sem ég hef, ei teljast hnittin;
 í hjarta vorar þjóðar, 'og sál.

?

Hugsandi stefni ég haltrandi burt
meðan hóandi, hleypur karl og fylgir.



„Á ég líf“? -hef ég mig spurt,
ég veit að á endanum enginn mig syrgir.








Hvað varð um lífshamingjuna

sem fylgdi mér hvert sem ég kom?
Var hún kannski ekki til?
Ég veit samt að eitt sinn hún veitti mér von,
en þá var lífið eitt gleði spil.

Kvöldið

Við sátum stíf hvort öðru hjá,
sæt og prúð, eins og nýgift hjón.
En eins og dögg fyrir sólu þú fórst mér frá,
og sagðir: „Ég vil þig ekki Jón"!




Hjarta mitt brást og sálin varð ónýt
er þú sagðir þetta við mig svo köld.
Og svo þegar ég aftur til baka lít,
þá verð ég að segja að ég dó þetta kvöld.

þriðjudagur, 1. október 2013

Að vafra villur vega

Vanalega mér þykir austur vera vestur
á verstu tímum - er allt bregst.
Þó nemi ég gleði, mér finnst ég vera gestur,
gerandi það sem geri ég best.
-
Dreymandi undur - drekkandi bjór -
og dröslast um göturnar strangar.
Kendur ég ráfa, kófdrukkinn og sljór;
en'að komast „heim“ aðeins mig langar.
-
En hvernig er það, kemur ei betri,
kátari 'og bjartari tíð?
Skyldi það verða, að skýni'undan vetri;
að skáni mitt vesæla líf..?

laugardagur, 21. september 2013

Calling God

Come meet me, please feed me
of your stories so true.
You know I’d been long gone
if it wasn't for you.
-                                  I’ll tell you this much of the world you live in:
            There’s no room for good, it’s so full of sin.

Come find me, please mind me
when I beg for Thee.
I feel all so reclusive,
I’ll never be free.
-                                  We've all been pre-punished for all of our crimes,
            that’s why I know how to handle hard times.

Come see me, please free me
from this terrible pain.
I don't have much left,
there’s no time to explain.
-                                  I've lived through my live maybe to blindly.
             So the one thing I know there ain't that much to see.
---

You know, when I wrote this I was as sober as hell.
You can’t find any other this whole story to tell.
I've been left here to die, I've been into deep.
While crossfiring sides my wisdom do weak.

To much ado

I never give, I mainly take.
I only give promises
which I mostly brake.
I sense a dreadful defeat
from wars that haven't started.

 - My conscience and wisdom have forever been parted. -

So feel the wrath of my tongue
along my melancholic voice.
Lets finish while we’re young,
now bring on the noise.

I see and you see - together we all see
true love getting lost at the bottom of the sea.