Translate

Sýnir færslur með efnisorðinu Lýsing. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Lýsing. Sýna allar færslur

föstudagur, 7. nóvember 2014

Afleiðingar ákvarðanna sem speglast í lélegri ljósmynd af dauðanum

sólin er appelsína 
sem skín á glötunina 
svarthvítt myndbrot 
af dauðanum
með áróður 
á móti lífinu


kómískur hryllingur 
með dramatísku ívafi
svo er öllum sagt að þegja 
og fyrir lygum hneigja
í dáleislu hrakfalla
líðandi stunda 
hryllileg dramatík 
með þó kómísku ívafi

Klukkan

trekktu mig upp
því mér finnst 
ég vera klukka
vísarnir hafa stöðvast

í miðju hlaupi sínu
eftir gangi tímans
og ég sit eftir - einn

ég horfi uppá fólk

sem ég þekti eitt sinn
taka mér fram úr 
skilja ekki neitt 
spyrja eftir svari: 
hvað tefur þig Jón?

En ég get auðvitað ekki svarað
ég skil ekki spurninguna

ég er bara klukka.

fimmtudagur, 10. október 2013

Útgeislun

Yfir fjöllin rís nú hin fagra sól,
fyrir öllum sig sýnir útum allt.
Ég sé hana fyrstur því ég stend uppá hól,
og loksins mér hættir að vera kalt.




Með fögrum geislunum vel hún sig ber,
í dáleiðslu allt annað horfir hana á.
Líkt og perlu, í opinni hörpuskel -
hana vilja helst allir að eiga fá.

Sjón er sögu leiðinlegri

Blóm.
Kertastjaki.
Hilla.
Glerborð.
Fánastöng.
Flugvél.
Dvergur.
Eldriborgari.
Gúrka.
Sandur.
Fugl.
Kátína.
Hörpuskel...
-
Paradís. 

miðvikudagur, 9. október 2013

Skyndikynni

Sjálfsagt það almennt þykir skrítið,
samt er það svona dagsatt.
Að'þó ég þekkti þig minna en lítið,
þá féll ég hraðar en hratt.

Málið

Ég vildi að ég gæti hugsað
áður'en um verður seinan.
Því við það að vona, ég hef ekki slugsað;
því er ég ekkert að leyna.

Þungt hefur mér þótt hugsað skýrt
en þó haft á því gætur,
að hugsa samt alltaf um eitthvað hýrt,
ef lúri ég einn um nætur.

Grun ég hef um'að þér hitni,
höfðinu í, við að skilja mitt mál -
'Því þau orð sem ég hef, ei teljast hnittin;
 í hjarta vorar þjóðar, 'og sál.

10 sec. from the mind of a psychopath

What is this, what is that? Sitting in the dark I ask my self this question over and over again...
This is this, and that is that. I hear coming from the walls... But there isn't
anybody there. So I hold my breath down, hoping I can kill my self that way but every time I do it someone interrupts me...
Little, purple, shining creature, who are you?
Are you the one, the one who gets me there in the end? Then why don't you let me do it? Just let me die! Let me end it, like everyone else who are locked up in this white room!
Ooh!
I can´t take it any more! I want it so badly, to dissolve into the abyss
...

The next morning the dark is darker then dark and death is deeper in nature. 

Eyðinlegging

Í kvöld, var tunglið ekki til
og tilgangur sólarinnar enginn.
Magn tilgangsleysunnar jóks til fulls
og tíminn stoppaði í andardrætti alheimsins.

Í kvöld, rigndi blóði yfir heilaga jörð
og sár hjörtu okkar dóu.
Því kaldur veturinn syrgir sína ást í kvöld
og lætur það bitna á okkur.

Í kvöld, fraus Jörðin og hætti að snúast
og sjúkleikinn náði hámarki.
Menn létust af völdum bræðra sinna í kvöld
og á meðan skapari okkar grét.

Í kvöld, vanvirtum við gjöfina frá föður okkar
og svívirtum vald hans með illu.
Það er svo skrítið að hann skuli ekki reiðast, í kvöld
og eyða þessari sköpun sinni.

Dansdvergurinn

Dvergurinn dansaði rosalega vel,
dolfallinn ég horfði þar á hann.
Mikið brá mér og varð ekki um sel,
meðan dansgólfið eftir hann brann.

Dáin glötun

Sólin lítur dagsins ljós,
horfir upp á sig sjálfa.
Svo undurfögur, hún fær mitt hrós,
svo falleg að hún fær mig til að skjálfa.

En seinna um tíma, hún sér sig ei meir
svífa um himinsins völl.
Því einhvern tímann allt lifandi deyr,
jú, gerum við það ekki öll? 

Ástarljóð

Má ég ganga inn?
...er það ekki í lagi?
Því ég þrái ekkert annað en þig,
þó svo að ég spái í annað.

Viltu leika við mig?
Má ég leika við þig?
Ég reyni allavega á það -
þó það sé bannað.

Spurning hvort við eyðum kvöldinu saman?
Bara við tvö ein, ég og þú,
það verður ábyggilega gaman.
Þú lítur svo laglega út...

Þessi eggjandi netti háls
og ekki er toppurinn síðri.
Þessi laglegi botn á þér líka

ég dregs samt helst að því sem inní þér býr.

Ég held bara að ég láti á þig vaða,
gríp um þig alla með annari hönd.
Dreg þig að mér og lyfti þér upp, 

varir okkar snertast - vökvar blandast....

Aaahh - þvílíkur unaður og sæla;
þú bjargaðir lífi mínu!
Ég veit ekki hvar ég væri
ef aldrei við hefðum kynnst

og ég ætti þig ekki að...

Ó, þú elsku besta 

- flaska af bjór.

laugardagur, 21. september 2013

Leitin að skósóla vestursins


Mér sýnist austur
stundum vera vestur.
Og ég stama kannski 

en Nökkvi er góður hestur

Þó maðurinn virðist

vera' í máli blestur
þá er Nökkvi alltaf

jafn hress og góður hestur.

Það er kadiljákur á hvolfi

útí skurði - útklesstur.
En Nökkvi er enn frár

og sprækur hestur.

Á hótel jörð er

sérhver maður gestur
og Nökkvi, hann er

æðislegur hestur.

Þjálfun er nauðsin

ef vilt þú verða bestur.
Þess vegna er Nökkvi

svona hraðskreiður hestur.

Ef fyrir hér finnst

einhver manna mestur,
mun hann Nökkvi án efa

vera mikið betri hestur.

Skordýraplágur

og uppskerubrestur…
En Nökkvi er alltaf

jafn sprækur hestur.

Bábylju upp bullar

blindfullur prestur.
En Nökkvi, hann er

geðveikt flottur hestur.

Þú vilt fá hrós en

uppskerð aðeins lestur.
Samt sem áður

er Nökkvi frábær hestur.

Og ef þér skildi ei fást 

lengri skilafrestur,
fáðu Nökkva í málið
því
hann er 'hinn besti hestur.

Andardráttur minn er eldfimur

Andardráttur minn er eldfimur,
innbyrgt hef ég nú of mikið eitur.
Og nú kominn er að
þessum hrörlega stað
þar sem rónarnir setjast glatt að.
Í sjálfsvorkun veltist ég um.
Eitrið bragðgóða klára ég úr dósunum.
Þótt ég viti það vel
það geri útaf mitt þel,
þá enn meira ég lep úr þess skel.
En ég kann eigi á því nein skil
hvers vegna í sopann ég leita svo vil.
Hann bara gerir mér gott,
galdrar allt ljótt í flott
og gerir ósýnilegt mikilsmanns stollt.
---
Máninn á mig töfrandi lýsir
með glitrandi geislum, svo mig nú fýsir
að fá mér einn meiri bjór,
er ‘ekki orðinn nógu sljór
svo ég keyri mig sjálfan í kór.
Ég sýp og sýp en ekkert ég græði.
Sé nú í gegnum þess alls kosta gæði.
Það bara hefur viss tök,
hugsunin verður slök
en um leið verður dómgreindin lök.
Ég verð nú að gefa því gaum,
þeim sjálfgefna mannlega draum.
Að sjá svart á hvítt
eitthvað gamalt sem nýtt,
og sjálfum mér geta þá hlítt
---
En allt er nú aftur á bak,
allt öfugt, samt sem tilbúið lak.
Þetta er einsog það er
og nú ég aleinn stend ber
aftan við hversdagsins her.
Svo, áfengi á ei við mig lengur
og aldrei í raun það hefur, minn drengur.
Heldur misskilið ég hef
þess tilgang, ég tel
 - en burt henda því ég tvístígandi vel…

And-fjand

Reiði ráðandi
rögum brandi með
vald vellandi, 
ólíðandi til vilja óeirða.

Þá hann tamdi sér
reynandi bjargandi,
eilífur heilagur andi,
sjúklega sýki til launa.

Trúandi treystandi bulli
- brengluðu rugli. 
Mataður inn að beini
af því mennska meini
að vera fíflaður,
viljandi hugstíflaður
af þeim sem treyst var í blindni.

Þá freistandi 
finnst manni frekar
trú að taka á
takmarkaðan sannleika.

Treystandi þeim hugmyndum
sem ,,gefin var börnum í skóinn"!

En því miður stýrir stíf
staðreynd því
stefnuleysi sem býr
í hugum lítilla manna.

Calling God

Come meet me, please feed me
of your stories so true.
You know I’d been long gone
if it wasn't for you.
-                                  I’ll tell you this much of the world you live in:
            There’s no room for good, it’s so full of sin.

Come find me, please mind me
when I beg for Thee.
I feel all so reclusive,
I’ll never be free.
-                                  We've all been pre-punished for all of our crimes,
            that’s why I know how to handle hard times.

Come see me, please free me
from this terrible pain.
I don't have much left,
there’s no time to explain.
-                                  I've lived through my live maybe to blindly.
             So the one thing I know there ain't that much to see.
---

You know, when I wrote this I was as sober as hell.
You can’t find any other this whole story to tell.
I've been left here to die, I've been into deep.
While crossfiring sides my wisdom do weak.

To much ado

I never give, I mainly take.
I only give promises
which I mostly brake.
I sense a dreadful defeat
from wars that haven't started.

 - My conscience and wisdom have forever been parted. -

So feel the wrath of my tongue
along my melancholic voice.
Lets finish while we’re young,
now bring on the noise.

I see and you see - together we all see
true love getting lost at the bottom of the sea.


 

I’m Leaving

Try to wake but I fall asleep,
I’ve been here for way to long.
Lost my faith & believe,
think terrible thoughts
all about different odds.

Try to stay but then I go again,
it’s hard to leave, my love.
But strangest things seem so good,
even though many are bad
–worse things I’ve never had.

Far away the light begins to shine
and I float into the fog.
Reasons not given, nor explained,
I feel good but not for long.
When you get here, I’ll be gone.

It’s hard to see or even to feel,
forget my loss.
It’s hard to take, don't start to cry,
don’t make such a fuzz.
Just go back to sleep, I’ll be in your dreams
to bring you relief.
Now, it’s my time to go
& I want you to know
that it’s not bad at all.

Loneliness

Shadow creatures of every size
break the silence of stillborn cries.
Suddenly, I hear echoes of a baby, crying.
As it haunts me feel my sole dying.
          Now, the Exodus isn’t far away.
          Genesis was only yesterday.
          I pray and I pray!
          Oh Lord, can’t you hear
          what I have to say?
I see lifes reflection in the wind
reminding me of all my deadly sins.
My eyes try up and I feel the spirit fly by,
touching my back and I wonder why?
          Now, everything is so far away.
          No one remembers yesterday.
          I pray and I pray!
          Oh Lord can’t you hear
          what I have to say?

See me

See me trying.
Trying to make the world a better place to live in.
See me crying,
and fighting the armies who’re frying,
every little thing that has never made a sin.
See me walking.
Walking forward to the bitter end.
See me talking.
Talking to somebody I thought was a friend.
See me setting my goal higher.
Higher than no time known before.
See me try a little harder,
harder than anyone just to score.

---
Every time I try to make myself clearer,
something drags me nearer
to the darkness of the world
which none but "he" understands.

He’s here

The Devil reminds
us of his existence
in words,
with sounds
and in fiction.
With great speeches
he preaches of war a
nd power, globalization
and extermination.
I see through this
bloody veil of lies.
Feed me truth!

- No…

He doesn't dare 
to speak the truth,
nor even to admit
his wars fought for
power, globalization
and extermination.