Skuld er á skellt skynlaust vitið
meðan hamrað er á heiminum...
- Það helst mér þykir skrítið.
Hér fá þjófar friðþægingu
meðan fátækt aðrir líða.
Synir Mammons, strax í fæðingu
sárt mannkynið svíða.
En nú veit ég betur
- á endanum bíður oss dómur.
Þar'sem í lokarimmu Ragnaraka
réttlátur dynur sá ómur
sem þyrma mun þeim mögum Burs
sem þjáðir sitja þó sáttir.
En rifnir verða þeir ranglátu
og reyttir í allar áttir.
Því öfund, græðgi og ærumeiðing
æðstir þykja mannanna lasta.
Goðanna griðum ei eru baðaðir
þeir sem úr glerhúsum grjóti kasta.
Girnist þú yfir höfuð gull,
gæta þín skaltu þá vinur.
Því undan djöfuls glamúr ósk
á endanum sárt þú stynur.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli