Translate

miðvikudagur, 9. október 2013

Smá spekúlering um Jesú

Fyrir löngu var maður krossfestur,
hengdur upp á spítu og negldur þar við.
Á jörðunni var hann álitinn gestur,
sem fór ekki saman við mannanna sið.

Þessi „einhver“ var ekki sá er við sáum,
sí betlandi um pening og sleikjandi ryð.
Heldur maðurinn sem á himninum bláum,
situr við Hans allra hæsta" hægri hlið.

Eftir að hyggja var hann góður maður,
fórnaði sér fúslega fyrir sína.
Þó margir tryðu að orð hans væru þvaður,
þá hitar hann upp sálu mína.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli