Translate

sunnudagur, 29. desember 2013

Ég vil skrifa skemmtileg ljóð

Ég vil skrifa skemmtileg ljóð,
skreyta orðin með gleði.
Með Braga list og „brútal“ móð,
breyta ég vildi leiðu geði.

En bergmál berst í gegnum mig,
sem bindur mig til þeirra verka
að berjast hart mót harðræði
og að hata alla tilvist klerka.

Að sjá í gegnum síðan allt
og senda lögvaldi tóninn.
Kunna að berja stálið kalt
og kyndil bera vetrarnónin.

Að elska lífið og allt sem er,
og í andartakinu eina lifa.
Heillandi virðist sú hugmynd mér,
en hentar mér ei er ég skrifa.

Því munu ljóð mín döpur vera,
myndskreytt bláum litbrigðum.
Orð í taumi blönduð með trega
til að létta á mínum birgðum.



Engin ummæli:

Skrifa ummæli