Hvar, ó hvar ertu mín indæla húfa?
Ég glaður þig fékk og á höfðinu bar
en sár nú ég er því þú ert ekki þar.
Hvar, ó hvar ertu mín ylríka húfa?
Mun höfuð mitt þann harmleik líða,
að þurfa undan frosti að svíða?
Hvar, ó hvar ertu mín uppáhalds húfa?
(ég týndi húfunni minni)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli