Translate

Sýnir færslur með efnisorðinu Kveðja. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Kveðja. Sýna allar færslur

föstudagur, 16. maí 2014

Heilshugar

Ég upprifjun fékk óumbeðna, 
skínandi í gegnum anaðann hugann,
um æskunnar skot sem forðum ég, 
saklaus gerði sjálfum mér upp,
til þín - í misskilningi víðrar vináttunnar.
Alein, hvort öðru við mættum; 
leið, yfirgefin - reið...
en sáttina fengum í þrengslum
félagsskaps hvors annars.
 
Vinkona - frænka - systir!
Ég sakna þín; ég af þér missti
fyrir ógleði vímunnar kvala.
 
Ég vildi að ég hefði séð og komið auga á
vísbendingarnar þínar hvað það varðar.
 
Oft og óðum, óður ég 
mig í minningum baða
til að endur-upplifa
þá tíma sem við áttum saman
svo glöð - þó í tíma og ótíma.
 
Og þó svo margt nú okkur skilji að,
ég í vonina held um að hittast á ný.
Og þá ég mun þér ekki aftur týna.
 
Þangað til ég óska þér
gæfu og blessunar!
Heilshugar.

miðvikudagur, 9. október 2013

Litla stelpan

Þótt þú eigir ekki hliðina bjarta,
þá áttu samt stað í mínu hjarta.
Og ég óska mér vil
að þú komir mín til
en í guðs bænum farðu ekki að kvarta. 

laugardagur, 21. september 2013

The heavenly queens stone

In so many ways I can't explain,
I've found peace, got rid of pain.
Everything is now and will forever,
always has been, yet also never.
          It's strange how we seem
          to be prearranged in shame,
          but who's to blame?
Heavenly blue as the clearest sky,
your blossom pours out from your eyes.
The kind that saves lives,
truly your optical doors.

          It's strange how we seem
          to be prearranged in shame,
          but who's to blame?

Blond hair and blue eyes,
I believe those are yours.
Your grace all around shines
without a word or even a move.
Writings through past times
from Gods creation and rules.

          It's strange how we seem
          to be prearranged in shame,
          but who's to blame?

Justice for your glory
and justice for your fate.
I know it's not our time
that's my reason to hate.
 








 




Sekur mínum sökum

„Hörund þitt, þitt hold svo fagurt"
hvíslar í gegn augu mín.
Og aldrei er nú mál mitt magurt
ef mál mitt er til þín.
Ég elska þig í gegnum vindinn
og er andar suðrið hlýja.
En ef brotið er gróft þá stækkar sindin
sem seinlegt mun vera að flýja.


Ég rita því þessi orð til þín
er þreytan er mig að svæfa.
Ég vildi að ég gæti hætt við vín
en eymdin er mig að kæfa.



föstudagur, 20. september 2013

Það var þá

Það var þá,
ég þekkti þig.
Þú varst með 
sumarblóm í hárinu.
Geislaði frá augum þínum
og þú gafst frá þér 
vináttu og blíðu.
Það var þá,
ég þekkti þig
þegar allt virtist glatað;
þú komst með von
og nýja trú á lífið.
Það var þá,
ég þekkti þig.
Þegar sólin þurfti 
frá að víkja
fyrir ásjónu þinni
á sólríkum sumardegi.
Það var þá,
ég þekkti þig.
Þú snertir mitt innra,
snertir ofurlétt 
skrápinn
svo hann hvarf.
Það var þá,
ég þekkti þig,
og aðeins þig -
takk fyrir allt.