Translate

þriðjudagur, 15. apríl 2014

Saga spekingsins

Hvar sem ég er, hvert sem ég fer
eru manneskjur einsog ég.
Þau spyrja mig ótal spurninga -

og speki þeim aðeins ég el.

Spyrja mig út - spyrja mig inn.

Á spurningareikninginn
leggja í fimmtugasta sinn,
og skuldirnar saman eg tel.

Ávextir endurtekninga

forvitninnar alinnar
eru sætir, en súrir blendingar
innan þeirra leynast.

Ómurinn eilífi víbrandi;

andardrátturinn út og inn.
Hugmyndir heilagrar þrenningar.
Hjálpræði 'vorrar menningar.


Rætur efnisins reyna 'að

ryðja sér rúms hérna;
róta í moldinni, leitandi lífs
og ríkulega uppskera.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli