er lengi að vakna
nóttin var og svo löng
og sérlega óframfærin
ég teygji úr mér og styn
úr stununum verða ljóð
Ég fer á fætur
og ég geispa
laga kaffi og les blað
dagurinn er að byrja
með látlausum látum
ég þríf mig allan
svo af geislar
úr geislunum verða ljóð
Ég held út í daginn
dreg andann djúpt
og leyfi sólinni
að snerta húðina
brosi með augunum
til himinsins og rýni
úr skýjunum nem ég ljóð
Ég stoppa í sjoppu
kaupi pulsu með öllu
nema remúlaði
og appelsín í gleri
með lakkrís röri.
Ég borga með klinki
slegnu af Seðlabanka Íslands
og læt afganginn í kassann
úr vinningnum verður ljóð
Ég stoppa við grjótgarðinn
tilli mér á stein
fuglar fljúga og syngja
fiskar synda og dansa
allir eru hressir í dag
og ég spyr fregna
úr fregnunum móta þeir ljóð
Ég held áfram að ráfa
um borgina gráa
gegnum daginn
með poka fullan af
guða veigum í dósum
úr dósinni sötra ég ljóð
Ég hitti mann
og annan og mikið
er mannsins gaman
rökræður og lofsöngvar
um og til lífs og dauða
fylla hug og hjarta
með rómuðum óðum
úr óðunum föndra ég ljóð
Ég geng heim á leið
signi mig og þakka
fyrir hlutskipti mitt og ævi
í rökkrinu finn ég lás
og ég opna dyrnar
að hellinum sem ég bý
á móti mér taka fljúgandi ljóð
Ég hátta mig
og skola af skítinn
leggst á koddann
og loka augunum
grátandi af gleði
sátt og skilning
og dáleiða mig
húmsins svæfandi ljóð
Ég sofna
draumarnir vakna
líð ég um í heimi
undra að handan
hitti skáld fortíðar
þau lesa mér orð
úr orðunum móta ég ljóð
Engin ummæli:
Skrifa ummæli