Translate

sunnudagur, 10. desember 2023

Morgunleikfimi

Ég settist hérna niður 
til að skrifa.
Skrifa ljóð.
Ég ætlaði að beygja orð 
og blanda saman,
meitla og móta í setningar
sem áttu að lýsa 
fegurð og einfaldleika
í bland við flókinn ósóma.
Ég ætlaði að skrifa ljóð
um gleði og trega,
og báðar hliðar sjálfsins.
Ljóð, sem kennt yrði í 
grunnskólum framtíðarinnar
og myndi aldrei gleymast,
heldur varðveitast 
fram yfir Ragnarök.
En ég get það ekki.
Ekki í dag.
Ég læt mér nægja 
að hlusta á útvarpsfréttir
og sötra kaffi úr bros-bolla
meðan veðrið fyrir utan
tekur geðhvarfaköst 
til skiptis við sólina.


Engin ummæli:

Skrifa ummæli