Translate

föstudagur, 3. október 2014

Heimspekileg vangavelta #53

Þú styður þig við stoðir réttlætis með faldnar fullyrðingar sjálfselskunar. Þvi jú, ekki er allt sem sýnist. Og það veist þú. Allt gefið og gert blátt áfram, án áfalla. En samt, þú veist...
Allt sem þú ert er einmitt hið eina sanna - þú, spegilmynd. Fullyrðing sjálfsins til fullkomnunar. Svo ekki reyna að ljúga. Hugmyndir fljúga fram og aftur, en þú þarft ekki að trúa öllu því sem á þig er borið. Ekki standa á stöllum þeirra trúarbragða sem mötuð voru ofan í þig á milli stríða rökræðna síðasta fyllerís. Þú færð afslátt af ís, en ekki af namminu
- þetta er lítil tilraun. En hér eru ekkert nema ræningjar sem þamba bjór þess á milli. Kvöldin eru eins góð og menn vilja. Það er bara þannig, eða þú veist, eru ekki allir jafn gefnir fyrir gamnið? Hin vélræna hylling. Það er víst hún sem ræður... Það held ég, systur og bræður - Bubbi Morthens er bara sjálfselskur trúbador, svo styrkið ykkar krafta og bara verið. Verið gegnsæjari en glerið sem nafn ykkar var ritað á til eilífðar. Verið "þið" út þann tíma.

Byrjunin - on/off. Þið ráðið hvernig þið kjósið á ljóðið að líta, hvort þið viljið endurgjaldið nýta; hvort gjörðin sé gjaldgeng til hins sama. En munið að vera ekki til erfiðis og ama.

Þú dregur andann að þér, ólöglegan, og brýtur þar með í bága við eðlið, strandar á skeri í öldugangi vitfirringarinnar.

Æði - gæði - vannæring - útkast.

Þú blæst út eitruðum drætti andans. Eldur og brennisteinn, hreinn og þar af leiðandi drepandi. Andardrátturinn er kennimerki drekaflokksins sem þú tilheyrir. Þó þú reynir, þá verður það ekki af þér tekið. Samviskan sefur ekki þó líkaminn dotti, hún er alltaf á varðbergi. Þessvegna sefur þú svona illa. Þar hefurðu það!

Munið þið hin bara að láta af ósómanum. Lifið betur í dag en í gær. Frá toppi niður í tær verið hrein, eins hrein og þið viljið. Sýnið þann styrk sem þið getið... Pétur opnar nefnilega ekki fyrir sóðum sálarinnar. Nei, hann skellir á tær þeirra sem upp láta um van-hegðun sína. Ég meina, maðurinn er með lyklakippu úr hreinu gulli. Afhverju ekki að nota hana..?

Engin ummæli:

Skrifa ummæli