Laugaður hef ég og ljóð mín skrifað,
að litbrigðum myndmáls orða miðað.
Í sálinni hef ég magnað upp seiða
og sungið þannig burtu lífsins leiða.
Styrjaldir hef ég hamslaus staðið
og hart stjórnleysið með mér alið.
Ég svifið hef frjáls um sælunnar engi
og spilað mín lög á vímunnar strengi.
Ég drukkið hef vín og ég hef dópað,
hef Díonýsus oftsinnis blótað.
Með Bakkusi hef títt bísað og starfað,
og barist um óður í stríðum geðhvarfa.
Á hugarfluginu langt hef ég farið,
og hratt um flogið upp á æðri staði.
En aldrei ég hef það haft fyrir sið
að hafa'af því unun og staldra þar við.
---
Sný ég því aptur í súru geðveikina
og snaraður fastur er neyddur í leikina.
Það leikrit að þykjast eðlilegur vera
og þjáningu raunveruleikans að bera.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli