Translate

mánudagur, 8. júlí 2019

Bruggað í hljóði bætur

Það gengur í hring;
hring eftir hring.
Eymurinn eflir sig
og eltir vind.
- Rignir að ofan
á bárujárnskofann -
Veðurguðirnir vel leika hèr,
virða allt fyrir sèr.
Skrifað í stein,
samitzkan hrein.
Lúrir á larfinum
hin lævísa grein.
- Grátmúrinn hruninn,
oflætið urið -
Framtíðin ekki til, fortíðin fölsk!
Vit mitt er loks við völd.
Arinn minn eflist
og um leið teflir
drottningin krúnunni út'á svellið.
- Hefst af stað heimför;
afskorin herör -
Gangurinn langur
og hann lengist enn meir...
Einn plús einn er tveir.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli