Ár er liðið; lottómiði.
Með vinning,
en hann er útrunninn
einsog áður.
Enginn varð smáður.
Reykháfur
fyrir varðeldinn sem
sífellt logar.
Tíminn togar til sín
bensín á bálið.
Tímamóta-sálir,
takk fyrir liðna árið.
Megi gæfan ykkur fylgja
og varðveitast,
èg óska þess heitast.
Enginn er svo týndur
að hans má ekki leita.
Valkvíði og streita.
Ekki til.
Því nú skal fagna
af gömlum sið.
Skála, skála
Og borða óhollt á milli mála.
Strengja heit
og við þau standa.
Bera boðskapinn
til annara landa.
Eymd og volæði til fjandans.
Klapp klapp fyrir þeim
sem þora.
Þetta kemur allt
er fer að vora.
Svo kemur sumarið.
Èg bið um frið.
Árstíðirnar eru svo
skemmtilega
margbreitilegar.
Einsog mannfólkið.
Hvert einasta barn
er hólpið ef
forðast það slúðrið
og skólpið.
Aftur, èg óska
ykkur gæfu
á nýju ári.
Brauð með kæfu
græðir sárið.
Megi þið njóta
lífsins sem skjótast
og gleyma harðindum.
Og aldrei hætta að reyna.
Magareina.
Takk fyrir allt,
þúsundfalt.
Lifið í lukku
en ekki með hrukkur.
Hèr með og úr þessu
lýk èg minni messu.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli