Translate

mánudagur, 8. júlí 2019

Lotugræðgi auðvaldsstefnunnar

Háir hamrar ris-kastalans 
tróna yfir hempudansleiknum 
sem haldinn er í boði 
heimskulegra jakkalakkakalla. 
Það er sjálfalin streituröskun 
áfalla og frákalla 
himnahöfðingjanna í austri 
sem botnar síðan raupið. 
Helga Helga heldur á spilastokk 
og rímar það við orðið "fokk". 
En Helga Helga þvær ekki þvott, 
heldur snýr hún uppá sig glott. 
Afsökun fyrir alþýðuna 
í formi gátta og glufa 
í bókstaf laganna saminna 
af bófum og ganglerum 
samvizkusamlega á þverbak. 
Furðulega gengur að finna 
rètta hljómfallið svo sinfónían 
geti gengið fyrir sig 
í hringi fyrir lífstíð. 
En það hlýtur að reddast. 
Það reddast alltaf allt. 
Og ef ekki, þá skiptir það ekki máli. 
Börn alin á káli og gúrkum 
af bakarasmiðum og skúrkum 
sem búa með hjúkkum 
- hjúkket - 
og hananú fyrir klukkan þrjú. 
Nema um jólin, þá er það klukkan ellefu. 
Þegiðu. Stundum. Alltaf. 
Og allt það. 
Kastalinn stendur á túni, 
austan megin við lækinn. 
I like it. 
Hirðin er á flúní 
og ræður ekki við svipbrigðin 
sem stökkva fram 
einsog kettir í hanaslag. 
Það er nú það. 
Kastalinn er fullur af gulli og vínsulli 
sem í sjálfu sèr 
sèr sjálfu sèr og öllum, 
sèrstaklega og sèr, 
fyrir konunglegu bulli 
sem ómar meðal hljóma-tóna. 
Nýr gluggi; klippa, líma og vista. 
Sistah. 
Líkkista og hitakassi. 
Tenór og bassi. 
Hver er munurinn á listaverki og krassi? Eftirnafnið. 
Yfirhafnir fyrir þá 
sem eru yfir aðra hafnir. 
Partýblaðra. 
Engill sem er naðra. 
Hann er fallinn kallinn. 
Fallin spýta sem ekki lengur 
er hægt að nýta 
nema til þess að sparka í. 
Spýtan er inní herberginu 
við hliðina á klósetinu 
sem glatt ètur skít. 
Það er vel við hæfi 
að þau eyði sinni ævi 
þar sem darraðadansinn 
er stiginn í sölum ris-kastalans 
á túninu austan meginn við lækinn 
sem frækinn liðast niður 
hlíðar himnabjarganna, 
þaðan sem raddirnar koma. 
Að ofan. 
Jakkalakkakallarnir 
höfðu fengið kallanir 
hver einn og einasti (líka sá fallni), 
allir, um hvernig ætti í bræði 
að gera allt brjálað á milli mála. 
Helst á milli hádegis 
og seinna kaffisins. 
Loksins. 
Loksins veit einhver hvenær 
eitthvað má eitthvað einhvern tímann. 
Hver fann upp símann? 
Hver er þessi Frímann? 
Hann er brotinn, það þarf að lím'ann 
svo hann verði aftur heill í framan, 
ekki þessi gríma 
sem leitt hefur hann til leiða 
svo mikils að hann leiður 
hefur alið sjálfstraustið 
að hausti 
í lokuðu klaustri 
með blýant. 
Allt er samt, en samt ekki. 
Èg rúlla bíldekki 
niður slóða með kekki 
og fulla sekki 
af drukknandi möðkum. 
Èg kann bara að bulla 
en raunin er að í draumi 
èg geri það á þann veg 
vegna þess að svarið er falið 
í höfuðstöfum 
á mismunandi stöðum 
í mismunandi röðum 
og misvísandi tilgangi. 
Langi svangi Mangi 
á gangi um ganginn 
sem liggur ekki heldur hangir 
niður meðfram gluggunum 
sem snúa hvort um sig 
í austur og vestur. 
Meðhjálpari og prestur 
labba inná bar 
þar sem kjúklingur var sestur 
á undan klukkunni. 
Klukkan er nefnilega sjúklingur, 
sýkt af veiru 
sem hefur hundrað eyru 
með meiru. 
Læknarnir standa á gati, 
skilja ekki í neinu, 
en skrifuðu uppá nokkrar línur á dag, 
límonaði og bað. 
Á meðan gerðist það 
að presturinn stökk á bak 
og meðhjálparinn lak 
niður einsog málning á striga 
þegar hún er ennþá blaut. 
Af þessu hlaut enginn skaða. 
Kastalinn var byrjaður að riða 
áður en tekið var til miða 
og á hann skrifað: 
"Lotugræðgi auðvaldsstefnunnar." 
Síðan fèll hann saman, 
stein fyrir stein, 
þangað til ekkert stóð eftir 
nema klósettið sem ètur skít 
og spýtan sem til einskis er nýt 
nema'að til'að sparka í. 
Þá sagði klósettið: 
"Èg hef ekkert nema saur ètið" 
og spýtan svaraði: 
"Viltu bit"? 
og rètti fram smárètti, 
nefið uppá bretti 
og söng stefið við Húsið á Slèttunni. 
Búsið í flèttunni. 
Svo fóru þau í sleik. 
Hundur undir stýri, 
Sogamýri. 
Að eilífu, Salem.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli