Translate

miðvikudagur, 3. desember 2025

--- Utan legs nám um lífið ---

ég bý 
í marglaga heimi 
endurtekinna hringrása
nótur, spilandi samhljóma 
sem kastast svo taktfast
fram og til baka 
milli rýmis og tíma
í riðandi flæði
samtvinnaðra vídda
og ég sé það
og ég skil það
og ég veit það
og ég er það
og ég er allt sem er 
og allt því meðfram
og allt þetta er 
á sama tíma ég
og heimurinn sem ég byggi
sem einsog vaxandi tré -
rótabundinn 
í nærandi sverði
stöðugur, græðir 
og gefandi dafnar
Askur alls þess sem er 
og þess á milli 
vel á milli
óþrjótandi endurkasta 
andstæðri endurspeglun 
andspænis svo annari 
og annari og annari
og öðrum
í allar áttir 
og úr þeim öllum
dregur upp mynd
í augnabliks upplifun
sjálfsins þar sem
andinn verður eilífur 
í millibils-ástandi 
sjálfs síns og efnis og tíma

Marglaga ómur 
öldugangur marserandi 
frá hyldýpi marsins 
ólgusjós úthafa 
endaleysis alls í engu
eigin upplifun eilífðar
fortíðar, nútíðar, framtíðar
aldrei en samt alltaf
djúpstæður kærleikur
alsæla, ást, eilífðin og - ég
að eilífu
salem 

föstudagur, 18. október 2024

Allsgáður og stútfullur af ást

Veruleikinn er ekkert 
nema minningar 
sem endurspeglast 
gegnum upplifanir; 
heimildir sjálfsins 
að tilheyra 
þeirri tilvist 
sem allir deila. 
Endurómar sálasöngva. 

Þrautseigja sáttarinnar 
springur út 
í viðurkenningu sjálfsins 
á breyskleika skepnunnar 
og hennar skynjunar. 
Upplifun réttlætinga 
eigin hagsmuna 
öllu og öðrum framar. 
Sjálfsjúkar hyllingar 
hugspillingar efnis í anda. 
Leitin að nýjum
og ódýrari landa.

Ég er ekki ég 
og á sama tíma 
er ég. Og ég sé 
mig í þér og næsta 
manni og tré. 
Vaðandi regnblautar 
hellur og gangstéttar
og malbik með puttana 
á iði og hugaðar hendur 
aftur fyrir bak
og speglandi skuggar 
í glugga gróðageðvillunnar, 
bjóða helmingsafslátt 
ef keypt er fyrir 
allan peninginn 
eða meira. 
Strýtroðnir lundar 
og Dettifoss-seglar. 
Jóhannes grætur 
úr gröfinni 
og Björgólfur lærir 
að skammast sín 
fyrir næstu kynslóðir
fiskvinnslufólksins;
gleymdu gæludýr 
blóðbundnu eyjunnar
úti við sundin.
Gvuð blessi Hörpuna 
og stöðumælagjöld

En meðan lygin 
drekkir sér
í áfengum tárum
loforða sinna
gagnvart lífinu
og gleymir
líður mér vel
því 
ég mundi sannleikann 
drakk hann allan
drakk mig allsgáðan
og stútfullan 
af ást

þriðjudagur, 19. mars 2024

888


Áttahundruðáttatíuogátta 
dagar milli 
áttahundruðáttatíuogátta 
nátta síðan
ég steig mín fyrstu
áttahundruðáttatíuogátta 
spor í átt að
einlægri værð
í huga og hjarta.
Áttahundruðáttatíuogátta
endurfæðingar
til lífs
til ástar
til fullkominnar
sáttar.

Áttahundruðáttatíuogátta.

sunnudagur, 10. desember 2023

Listi

Hvað þarf?
Hvenær þarf það?
Tímapöntun?
Hvað þarf "ég"?
Hvað þurfum "við"?

klukkan er korter yfir höfuð

nýr dagur og styttist í páska
baunate í bolla
sængin vakti mig með skjalli
lífið er að vakna
með fyrirfram þökk
-
og hvað kostar þetta nú?

tíkalla og tuttugu ár
fjöldan allan af árum
og tíköllum 
fyrir trúðinn

frosið smjör í tappa
sykurmolar fyrir sálina
djúpvöðvaþjálfun og hjálega
drjúpa í fötur hljóma
tónar og nóturnar svífa
meðfram brúnunum

forvitninni fullnægt 
með fimm fingrum
og fimm fingrum fleiri
-
góðan daginn og verið þið sæl

...hvort er á morgun eða í gær?

endurupptaka sjálfsins
undirbúningur dagsins
ég sleiki út um
og kyngi lofti
brosi og sýni tennur
amstrið er kærkomið í kaffi

Við Tjörnina

Ég sit á bekk og horfi
horfi á fugla synda
og syngja.
Mér finnst svanirnir falskir.
Gæsirnar reiðar,
út í hvað
veit ég ekki.
Andapörin leiðast
saman í gegnum lífið.
Dúfurnar dansa
og sveima á milli.
Svo eru fuglar þarna
sem eru alltaf að kafa.

Kona gengur hjá með hund
í bandi.
Önnur fylgir með barn
í vagni.
Unga fólkið hlær og grætur
og talar um hlutverk hvíta mannsins.

Það er rigning á köflum
og nánast logn
nema stundum.

Innskeif gæs biður mig um brauð.
En ég á ekkert.
Ekkert nema áhyggjur morgundagsins.

fagrir fíflar í glasi

þegar skýjin gráta 
líður mèr vel
einsog gróðrinum
ég drekk í mig 
anda náttúrunnar 
sem gufaði upp
einsog landi
til að fylla
uppfylla lífið
ég er gangandi planta 
rótarlaus 
einsog blístrandi kúreki 
vatnið er lífið
en einsog allt
er það betra með whiskey

ég sit á bar
ég á heima þar
fólkið hlær
ég tengi
en mèr stekkur ekki bros 
því þetta er allt
svo tilgangslaust
ég hlæ ekki nema
brandarinn snúist 
um kúk eða piss

samansafn af fólki
með mismunandi metnað 
en allir eru að 
reyna að verða fullir
fullir af viti
sem kemur út
í vitleysu

ég anda að mér
sýp froðu
og fussa yfir
fréttum af hamförum
og græðgi mannsins
fólkið blaðrar 
og ælir orðum
ég stend upp
og borga barþjóninum
með Matador seðli
sem ég stal 
af barni í strætó

kvöldsólin vermir
og ég vankast

bara dagur

Ég er vaknaður
er lengi að vakna
nóttin var og svo löng
og sérlega óframfærin
ég teygji úr mér og styn
úr stununum verða ljóð

Ég fer á fætur 
og ég geispa
laga kaffi og les blað
dagurinn er að byrja
með látlausum látum
ég þríf mig allan
svo af geislar
úr geislunum verða ljóð

Ég held út í daginn
dreg andann djúpt
og leyfi sólinni 
að snerta húðina
brosi með augunum 
til himinsins og rýni
úr skýjunum nem ég ljóð

Ég stoppa í sjoppu
kaupi pulsu með öllu
nema remúlaði
og appelsín í gleri
með lakkrís röri.
Ég borga með klinki
slegnu af Seðlabanka Íslands
og læt afganginn í kassann
úr vinningnum verður ljóð

Ég stoppa við grjótgarðinn
tilli mér á stein
fuglar fljúga og syngja
fiskar synda og dansa
allir eru hressir í dag
og ég spyr fregna
úr fregnunum móta þeir ljóð

Ég held áfram að ráfa 
um borgina gráa
gegnum daginn 
með poka fullan af 
guða veigum í dósum
úr dósinni sötra ég ljóð

Ég hitti mann 
og annan og mikið 
er mannsins gaman
rökræður og lofsöngvar
um og til lífs og dauða
fylla hug og hjarta
með rómuðum óðum
úr óðunum föndra ég ljóð

Ég geng heim á leið
signi mig og þakka
fyrir hlutskipti mitt og ævi
í rökkrinu finn ég lás
og ég opna dyrnar
að hellinum sem ég bý
á móti mér taka fljúgandi ljóð

Ég hátta mig 
og skola af skítinn
leggst á koddann 
og loka augunum 
grátandi af gleði 
sátt og skilning
og dáleiða mig 
húmsins svæfandi ljóð

Ég sofna
draumarnir vakna
líð ég um í heimi
undra að handan
hitti skáld fortíðar
þau lesa mér orð
úr orðunum móta ég ljóð

Morgunleikfimi

Ég settist hérna niður 
til að skrifa.
Skrifa ljóð.
Ég ætlaði að beygja orð 
og blanda saman,
meitla og móta í setningar
sem áttu að lýsa 
fegurð og einfaldleika
í bland við flókinn ósóma.
Ég ætlaði að skrifa ljóð
um gleði og trega,
og báðar hliðar sjálfsins.
Ljóð, sem kennt yrði í 
grunnskólum framtíðarinnar
og myndi aldrei gleymast,
heldur varðveitast 
fram yfir Ragnarök.
En ég get það ekki.
Ekki í dag.
Ég læt mér nægja 
að hlusta á útvarpsfréttir
og sötra kaffi úr bros-bolla
meðan veðrið fyrir utan
tekur geðhvarfaköst 
til skiptis við sólina.


Öreindir


ég kyssi þig
á taugarnar -
þú talar svo mjúkt
hlærð svo fallega

flauel, satín
blandar þér sóda 
og hvítvín
og segir svo seiðandi bless

Kveðjuorð til kanínu

Ég sótti þig seint um kvöld
í snjóhríð lengst upp í Árbæ.
Þú, bakvið brún gluggatjöld,
beiðst mín þar feiminn og vær.

Þó smávaxinn sýndist og var,
þú sannaðir fljótt hið gagnstæða.
Svo hugaður, hljóður og snar
þú hafðir margt við mig að ræða.

Kápa þín hvít, eins og mjöll,
hún klæddi þig svo fullkomlega.
Þú vígðir hér þinn heimavöll
varst þrjóskur, samt guðdómleg vera.

Glöggt af þér skynsemin skein
og skapmikill varstu á köflum.
En hvenær sem kom ég seint heim
þú heilsaðir ávallt með skjöllum.

Einlæga ást gafstu þér frá
óeigingjarn varstu og prúður.
Stílhreinn og stóískur, klár,
strákurinn minn, elsku Snúður.

Ég gaf þér allt sem að ég gat,
gerði mitt besta og reyndi.
En sjálfstæði þitt ég ofmat;
að 'einmanna þú værir, ég gleymdi.

Ég sakna þín vinur, svo sárt,
og sýni það með orðatenglum.
Litli kallinn minn, ljóðið er klárt -
ég lifi en þú kúrir með englum.


mánudagur, 8. júlí 2019

Bæn drykkjumannsins

Brennivín og bjór...
Færðu mér brennivín og bjór!
- Svo batni minn hugur;
verði' aftur sljór.
Hér sit ég einn, leiður,
ófullur - ófrjór -
því sál mína vantar
soðið brennivín
og bjór...

Sjá meira

Ég sýp blóð úr dauðum dýrum,
blóð sem hefur dropað niður
smogið gegnum jörðina
og orðið að næringu aldinna
og lífsneista jurtanna.
Ég et gróður sprottinn úr skít,
skít sem hefur droppað niður
smogið gegnum jörðina
og orðið að næringu aldinna
og lífsneista jurtanna.

Hugleiðing daxins, þann níenda júníus complexus

Æðið mun seint af mèr teljast,
èg skrítinn er og fèkk'ekki að velja
neitt um það, nè um þaðáð segja 
nokkuð, og furðulegur èg mun því deyja.
Èg er ekkert að kvarta og í rauninni kann ekki...
Kímni er vopn mitt og þó hlekkir
sèu bundnir um fætur mína báða;
böl èg óska þeim sem yfir mèr ráða.
En samt, eftir allt, mun èg ávalt þá elska.
Ástæðu til haturs èg sè enga helsta.
Mannskepnan er sköpuð til að beita
skökku rèttlæti til þeirra sem yfirvaldi afneita.
Þad er bara því midur á þann veginn.
Þad er líka þad sem afvegaleiðir
mannskepnunar til að meðtaka og ekki skilja
máttinn sem þær hafa til ad fá þad sem þær vilja.
Frelsi.
Ekki helsi.
Heldur heimta
það löngu gleymda
til baka - lífið.
Endurheimta þífið
frá ræningjunum -
svo syngjum:
"Einn fyrir alla, allir fyrir einn!"
Fuck you
and
your absurd culture!
- Triple X, respect to you!
Hægri efri skankann hefjum upp,
höldum fingrunum kreftum og krefjumst
afnáms spillingar og allmennrar nauðgunar
alræðis-auðsöfnunnar
gagnvart okkur fólkinu,
hinna sönnu erfingja
auðlinda jarðarinnar!
Frelsum svo löngutöng!
Nú er tími hinna rèttlátu íkveikja norna!
Afturkall til tíma náttúrunnar!
Við erum fólk, ekki fokkin þrælar!
Fynnum aptur hið innra,
látum okkur ekki myrða til þöggunar!
Segjum sönnu sögurnar!
Sýnum heiminum hverjir sigra þegar því kemur,
særum þrjótana sem lifa af
á eftirlaunum ömmum okkar og afa!
"Látum þá drekka hland,
og hèr mun rísa fyrirmyndarland"!
Um leið, leiðum hugann ad börnunum,
látum þau ekki verda undan upplýsingunum,
kennum þeim rèttláta, kærleiksríka uppbyggingu
á kerfi sem þjónar öllu mannkyninu.
Án misrèttis til kynþátta, kynhneigða eða lífsfyllingar!
Krefjumst betrunar,
leiðir til batnaðar
og að það sè bannað að skilja útundan!
Við erum öll í sama liði,
við erum öll bestu vinir
sem börn,
svo tekur eitthvad illt yfir...
Ranglæti, í kringum
aldurinn um fermingu
vid lærum,
vegna illrar innrætingar
og brenglaðrar menntunar
þeirra sem ráða
og semja reglurnar
til rèttlætingar
sinna vitfirrtu sýna
og falsaðr upplýsinga.
Það er það sem þeir svo í skólunum kenna.
Vöknum kæru vinir, systkyn - vöknum!
Sýnum kærleika, samstöðu og þökkum
sjálfu lífinu fyrir med pökkum
fylltum auðmýkt frá okkar innra,
fordóma og spillingar skulum svo myrða.
Höldum uppá heilögu Jólin, Ramadan og Ljósahátíðina,
sem og hátíðir "frumbyggja",
sameinaðar sem tákn einingar
mannkynsins í baráttu vid illskuna,
það afl sem knúði okkur til sundrunar:
Peninga, arðrána, þjóðarmorða
og kerfisbundinna spillingar!
Vöknum kæru vinir og systkyn -vöknum...
Takk fyrir að lesa,
hlusta med augunum
og hugsa.
Èg innilega frá hjartanu vonað
èg hafi'ekki valdið neinum usla.
Meininginn er að við sameinumst gegn ríki þursa,
arðræningjum og lygurum.
Það er það eina sem èg bið um:
Vöknum, kæru vinir og systkyn - VÖKNUM!

Hrafninn drukkinn

Með blaki sinna
svörtu vængja
hann sýnir mèr 
með hverri fjöður
andardrátt aldanna.
Blekbytta skýjanna.
Út frá hjarta
heimsins sækja
falin skilaboð
Allsherjarföðurs;
fagnaðu falli fíflsins!
Fæðingarhríðir fegurðar.
-
Allt er í engu,
en samt...
-
Yfirdrifin alsæla normsins,
enginn hefur lamið biskup.

Dagamunur

Frá botni dalsins sèst til toppsins.
Frá toppi fjallsins sèst til botnsins.
Sólin og stjörnurnar eru eins frá báðum stöðum litið.
-
nema þegar er þoka.

Að vera alkóhólisti á Íslandi

Leiðir liggja til allra átta,
en èg finn bara'ekki leiðina heim.
Reykjavíkur-blæti

Kær kveðja

Fingur hef èg fína mèr
fimm á hvorri hendi.
Langatöng þó best èg tel
traustust boð mín sendi.
- sjúddann!

Fjallstoppurinn

Skoraði sköpun mín
skemmst frá að segja
magnaðri misskilning
en menn kann að dreyma...
En èg lærði að umræður um aðrar víddir
og fegurðina við dauðann
eiga ekki heima í "smáspjalli"
við fólk sem talar helst bara um veðrið
- við alla, allsstaðar og alltaf -
í miðri skírnarveislu eða í strætó...
Fólk vill bara kökur, kaffi og kjaftæði
sem kemur engum að gagni.
...silly me
Maður er samt alltaf að læra.

Vangaveltur yfir tómu glasi

Raunveruleikinn
er ekki til
í raun og veru.
Draumur dreymdur
glaumur gleymdur
alvara alls
og einskis.
Tíminn dansar tangó
á Tenerife.
Allt uppá grín.
Að eilífu
- Harlem!