Translate

Sýnir færslur með efnisorðinu Vitleysa. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Vitleysa. Sýna allar færslur

föstudagur, 20. september 2013

Uppleysa

Kröfur gerðar til rangra karlmanna,
kreist var upp úr börnum eggjanna.
Lífið losnar frá ströngum vitsmunum
sem leiðandi stórar hugmyndir spanna.
Þjarmað er að þröngsýnum ungmennum
og það sem í skólunum við kennum
er að ekki vera að standa í stríði á móti
stanzlausri níðslu valdsins þrennu.

Þynnku – þunglyndi

Ég stend á villigötum samtímans,
set út á hvítflipalíf og eleganz
- því ég sé út um gluggan það sem enginn sér.


Tómar brennivínsflöskur og tómir bjórar,
bara tímaflækja - ekki ein, heldur fjórar.
Augu mín eins og fínpússuð gler.
Stolnir draumar seldir á götuhorni,
í sannleika sagt eru þeir löngu horfnir.
Það finnst bara öllum gaman að rugla í mér.


Ég krefst þess kona að þú klækir mig!
Já einmitt svona, ég vona að þú særir mig.
Og við tökum því bara eins og það er.


Þó gæfi ég allt sem hér ég geymi í leyni
græddi ég ekkert í þessum heimi...
Ég segi þetta nóg, ég á ekki heima hér.