Ég stend á villigötum samtímans,
set út á hvítflipalíf og
eleganz
- því ég sé út um gluggan
það sem enginn sér.
Tómar brennivínsflöskur
og tómir bjórar,
bara tímaflækja - ekki ein, heldur fjórar.
Augu mín eins og
fínpússuð gler.
Stolnir draumar seldir á
götuhorni,
í sannleika sagt eru
þeir löngu horfnir.
Það finnst bara öllum
gaman að rugla í mér.
Ég krefst þess kona að þú
klækir mig!
Já einmitt svona, ég vona
að þú særir mig.
Og við tökum því bara
eins og það er.
Þó gæfi ég allt sem hér
ég geymi í leyni
græddi ég ekkert í þessum heimi...
Ég segi þetta nóg, ég
á ekki heima hér.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli